Innlent | mbl | 22.4.2026 | 18:26 Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Víðir Reynisson, fyrrverandi sviðsstjóri almannavarna og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar, kannast ekki við þá gagnrýni sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar um byggingu varnargarðanna í Grindavík. Víðir hafði yfirumsjón með aðgerðum í Grindavík. Kjarninn í gagnrýni Ríkisendurskoðunar er sá að þótt verkefnið hafi heppnast tæknilega og varnargarðarnir virkað, hafi stjórnsýsla, ábyrgð og eftirlit verið ófullnægjandi og óskýr. Þá er þar sagt að verkefnið hafi reynst ríkislögreglustjóra ofviða. „Það hefði kannski verið tilvalið hjá Ríkisendurskoðun að tala við þá sem að þessu stóðu. Það var ekkert talað við mig, deildarstjóra minn eða næstráðanda. Því dreg ég í efa að það sem sett er fram byggi á réttum gögnum.“ „Við sem unnum að þessu vitum að ég sem sviðsstjóri almannavarna bar ábyrgð og mér fannst kerfið skýrt. Einnig fannst mér þeir sem ég vann með frá Verkís og Vegagerðinni hafa hlutverk sitt á hreinu,“ segir Víðir. Frétt af mbl.is Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Frétt af mbl.is Sammála gagnrýni á sjálfa sig Unnum tugi skýrslna og minnisblaða Hann segir að honum hafi ekki gefist ráðrúm til að lesa skýrsluna sem birt var í dag en að hann geti þó tjáð sig um málið. „Þegar við fórum að skoða hvernig við gætum varið þessa innviði, gerðum við tilraunir með ýmsar gerðir varnargarða í gosunum 2020 og 2021. Unnar voru tugir skýrslna og minnisblaða um málið, þótt um trúnaðarmál hafi verið að ræða í mörgum tilfellum,“ segir Víðir. Hann segir að í framhaldinu hafi verið ráðinn verkefnastjóri frá Verkís, sem hafi haft það hlutverk að tryggja að framkvæmdirnar væru unnar á faglegan hátt. „Ég stýrði verkefninu og bar ábyrgð á því. Ef verið er að halda því fram að ég hafi ekki ráðið við verkefnið, þá er það ekki rétt,“ segir Víðir. Hann segir að ákvarðanir hafi verið teknar út frá stöðunni hverju sinni. Meginmarkmiðið hafi verið að verja Grindavík og Svartsengi, og það hafi tekist. „Að því leyti tókst þetta vel. Kostnaðaráætlanir stóðust einnig, miðað við þær áætlanir sem við lögðum fyrir forsætisráðherra.“ Voru að bregðast við neyðarástandi Hann segir að varnargarðarnir hafi verið byggðir á grundvelli hraunlíkana frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Verkís. „Úr þessum líkönum komu áætlanir og í framhaldinu voru varnargarðar byggðir. En við lentum ítrekað í því að hraunið fór hærra en gert var ráð fyrir. Hraunið náði hæstu hæðum og í sumum tilvikum, eins og þegar það fór yfir bílastæðið við Bláa lónið eða þegar heitavatnslögnin við Svartsengi varð fyrir áhrifum, þurfti að bregðast hratt við. Sumar ákvarðanir voru því teknar í algjöru neyðarástandi,“ segir Víðir. Kannast við eitt skipti Bent hefur verið á að gagnrýnin snúi ekki að því að framkvæmdin hafi mistekist, heldur að dæmi séu um að kostnaður hafi verið illa rekjanlegur og að stjórnsýsluleg ábyrgð hafi ekki verið nægilega skýr. Þá er einnig nefnt að varnargarður hafi verið hækkaður án aðkomu ráðherra. „Eina skiptið sem mér dettur í hug varðandi ráðherrann er þegar eldgosið var að flæða yfir varnargarða og menn brugðust við því. Annað kannast ég ekki við,“ segir Víðir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Tryggvi og félagar undir eftir fyrri leikinn „Tónlist græðir sárin“ Grindavík – Valur kl. 19.15, bein lýsing Glódís meistari fjórða árið í röð Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Veigamikið framsal ríkisvalds Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Einn fluttur á slysadeild Leit hafin að nýju að ferðamanninum Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Sjö sækja um embætti sýslumanns Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Tryggvi og félagar undir eftir fyrri leikinn „Tónlist græðir sárin“ Grindavík – Valur kl. 19.15, bein lýsing Glódís meistari fjórða árið í röð Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Borgin fór á mis við nokkra milljarða Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Einn fluttur á slysadeild Leit hafin að nýju að ferðamanninum Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Sjö sækja um embætti sýslumanns Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set