Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spyrji hvað Íslendingar geri sem sé svona rétt

Read Full Article →

„Það verður samdráttur hjá okkur á næstu árum en það er gleði í mörgum litlum sigrum hjá okkur,“ segir Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, sem var í liðinni viku á skemmtiferðaskiparáðstefnu í Miami. Virðisaukaskattur innheimtur á þessu ári Eins og Fiskifréttir hafa sagt frá mun Skatturinn nú leggja virðisaukaskatt á skemmtiferðaskip í hringsiglingum um landið og gildir sú ákvörðun frá og með þessu ári. Skipin áttu að skrá sig á vsk-skrá fyrir apríl. „Það eru enn einhverjir lausir endar en þetta tekur gildi núna,“ segir Sigurður.Fyrsta hringsiglingaskipið verði hér í maí. Yrði aðeins hnekkt með lagabreytingu Aðspurður segir Sigurður ekki hafa reynst hægt að fá þessari ákvörðun Skattsins hnekkt. „Það þarf þá einfaldlega lagabreytingu,“ segir hann. Slíkt sé ekki í sjónmáli að svo stöddu. Til stóð að afnema tollfrelsi þessara skipa en ekki varð af því og kveður Sigurður það klárlega vera jákvætt. Litla Ísland svolítið einstakt Þrátt fyrir þetta og innviðagjöld á þessa starfsemi segir Sigurður ekkert svartnætti fram undan. „En það er ákveðin hætta á því að virðisaukaskatturinn þýði að það verði meira flækjustig og að hann hlaupi í umsýslu og umsýslugjöld og að það sitji ekki mikið eftir,“ segir Sigurður. Byggt brú milli áfangastaða og yfir hafið Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, Unnur Elva Arnardóttir, formaður Cruise Iceland, Emma Kjartansdóttir, varaformaður Cruise Iceland og Nikos Mertzanidis forseti CLIA Europe. Mynd/Aðsend „Ég lít svolítið á þetta þannig að við höfum verið að byggja brú á milli áfangastaða og yfir hafið,“ segir Sigurður. Hann tiltekur sérstaklega samtakamátt í greininni og það sem Cruise Iceland hafi verið að gera undanfarin ár í þéttri samvinnu við aðra. Um þrjátíu manna hópur Íslendinga hafi verið á ráðstefnunni í Miami, þar með taldir bæjarstjórar og hafnarstjórar auk fulltrúa ferðaþjónustufyrirtækja og annarra. Ná árangri með samstöðu „Aðrir hafa verið að horfa til okkar og spyrja hvað það sé sem Íslendingar séu að gera sem er svona rétt og finnst magnað að við séum með svona mikla samstöðu og samvinnu og séum að ná árangri,“ segir Sigurður. Við séum hvött áfram og til að passa upp á að umhverfið sé stöðugt. Hafi myndað tengsl við skipafélögin „Við höfum tekið þátt í að leysa alls kyns mál í kringum skipin og höfum fengið stjórnvöld til að skilja betur að það sem þau gerðu áður sé bara eitthvað maður gerir ekki. Þessu höfum við komið til skipafélaganna og erum búin að mynda tengsl við þau,“ heldur Sigurður áfram. Margar nýjungar á fáum árum „Við höfum verið að kynna nýju farþegamiðstöðina, nýja bryggju á Akureyri, breytingar í Skagafirði, nýjan útsýnispall á Seyðisfirði og fleira. Þetta eru allt saman hlutir sem eru að gerast á fáum árum. Litla Ísland er bara svolítið einstakt.“ Bás Íslendinganna á SeaTrade Global ráðstefnunni í Miami. Básinn er sagður aldrei hafa verið jafn glæsilegur. Mynd/Aðsend

Share this article