Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.5.2026 | 15:45 Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Ef skipið kemur til Íslands þurfa öll vottorð að vera í lagi. Samsett mynd/AFP/mbl.is/Hallur Már Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hanta-veiran í skemmtiferðaskipi Strangar varúðarráðstafanir um borð í skipinu Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Vilja flytja tvo veika farþega heim Eins og staðan er núna er engin ástæða fyrir sóttvarnalækni til að grípa til aðgerða vegna komu skemmtiferðaskipsins MV Hondius hingað til lands í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í svari Guðrúnar Aspelund sóttvarnalæknis við fyrirspurn mbl.is. Frétt af mbl.is Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skipið liggur við akkeri undan ströndum Grænhöfðaeyja. Talið er að þrír sem voru um borð hafi látist af völdum Hanta-veirunnar. Þrír til viðbótar eru veikir og eru tveir þeirra enn um borð. „Íslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur“ „Íslendingar þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessu sérstaklega en ef þetta skip kemur síðar í mánuðinum þá þarf það auðvitað að hafa öll vottorð og annað í lagi,” segir Guðrún jafnframt í svari sínu. MV Hondius liggur við akkeri undan ströndum Grænhöfðaeyja. AFP Hún nefnir að þótt það sé á langtímaáætlun skipsins að koma til Íslands þá geti margt breyst í millitíðinni. Eins og er sé skipið ekki að fara frá Suður-Afríku. Bendir hún á að yfirvöld á Grænhöfðaeyjum hafi í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og önnur ríki þegar gripið til aðgerða. Fyrr í dag meinuðu yfirvöld á Grænhöfðaeyjum farþegum skipsins að stíga þar í land. Til greina kemur að þeir fái þess í stað að stíga í land á Kanaríeyjum. Frétt af mbl.is Strangar varúðarráðstafanir um borð í skipinu „Auðvitað þarf að útrýma meindýrum ef þau eru um borð, þrífa og sótthreinsa allt og einnig þegar fólk er farið frá borði. Ég geri ráð fyrir að það verði gert og skipið fær ekki leyfi til að koma annars staðar í höfn fyrr en það hefur verið gert og staðfest,” útskýrir Guðrún. Yfir 20 afbrigði af Hanta-veirunni Alls eru til yfir 20 afbrigði Hanta-veiru, sem er súnuvaldur, þ.e. sjúkdómur sem smitast á milli manna og dýra. Einhver þessara afbrigða hafa takmarkaða getu til að smitast á milli manna en aðallega berast smit frá saur, þvagi eða munnvatni nagdýra, greinir hún sömuleiðis frá í svari sínu og á þar við mýs og rottur. Frétt af mbl.is Hvað er hantaveira? Guðrún Aspelund. mbl.is/Hallur Már Enginn greinst hérlendis Aðspurð kveðst Guðrún ekki vita til þess að neinn hafi greinst með veiruna hérlendis eða að hún finnist eða hafi verið staðfest í meindýrum hér á landi. Vissulega gæti fólk smitast af veirunni erlendis og komið til Íslands með sjúkdóminn en meðgöngutími sýkingarinnar er frekar langur, eða tvær til þrjár vikur og jafnvel lengri. Tengdar fréttir Hanta-veiran í skemmtiferðaskipi Strangar varúðarráðstafanir um borð í skipinu Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Almenningi stafar lítil hætta af veirunni Vilja flytja tvo veika farþega heim Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vildi ekki að Kristall fengi allt sviðsljósið Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Flugvél rakst á vörubíl við lendingu Skórnir komnir á hilluna Eugenie prinsessa ófrísk á ný Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt „Ég veit hvar þú átt heima“ Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Andlát: Sigmar Ó. Maríusson Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Vildi ekki að Kristall fengi allt sviðsljósið Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Flugvél rakst á vörubíl við lendingu Skórnir komnir á hilluna Eugenie prinsessa ófrísk á ný Umræðan Eldri borgarar mæta afgangi hjá Ásdísi Ísland stendur á krossgötum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt 100 dagar í almyrkvann: Þetta er gott að vita Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum „Ég veit hvar þú átt heima“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Blikur á lofti í byggingariðnaði Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Skólayfirvöld axli ábyrgð Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Börnin vilja styttra kennaranám og meiri íslensku Andlát: Sigmar Ó. Maríusson Inga Dögg lést í kajakslysinu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Allir sögðu nei nema Heiða Björg Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Leikskólastjóri gagnrýnir „niðurlægjandi“ orð Kristrúnar Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article