Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.5.2026 | 23:50 Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Skemmtiferðaskip skammt frá Keflavíkurhöfn. Ljósmynd/Aðsend Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hantaveiran í skemmtiferðaskipi Skipið fær að leggjast að bryggju í Kanaríeyjum Yfirvöld óákveðin: Óvissa um næstu skref skipsins Grunur um að veiran hafi smitast á milli manna Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Tvö tilfelli Hantaveiru staðfest: Grunur um fimm » Fleiri tengdar fréttir Hafnarstjóri Reykjaneshafnar, sem rekur meðal annars Keflavíkurhöfn, segist ekki hafa sérstakar áhyggjur af fyrirhugaðri komu skemmtiferðaskipsins MV Hondius til Íslands. Skipið á að leggjast að bryggju í Keflavíkurhöfn 29. maí næstkomandi og siglir eftir það meðal annars til Grímseyjar og Akureyrar. Frétt af mbl.is Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Tvö tilfelli hantaveirunnar á meðal farþega skipsins hafa verið staðfest og grunur er uppi um fimm smit til viðbótar. Þrír eru nú þegar látnir, einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi og þrír eru með væg sjúkdómseinkenni. Frétt af mbl.is Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni MV Hondius liggur við akkeri undan ströndum Grænhöfðaeyja. AFP Fjórar vikur til stefnu „Það eru fjórar vikur í að þetta skip á að láta sjá sig hérna, við höfum ekki neinar sérstakar áhyggjur. Þetta er eitthvað sem er á annarra manna höndum heldur en mínum,” segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, aðspurður. Alls eru til yfir 20 afbrigði Hantaveiru, sem er súnuvaldur, þ.e. sjúkdómur sem smitast á milli manna og dýra. Einhver þessara afbrigða hafa takmarkaða getu til að smitast á milli manna en aðallega berast smit frá saur, þvagi eða munnvatni nagdýra, að sögn sóttvarnalæknis. Frétt af mbl.is Grunur um að veiran hafi smitast á milli manna MV Hondius hefur ekki komið til Keflavíkur síðan Halldór hóf störf þar fyrir ellefu árum síðan. Hann segir margt eiga eftir að gerast í kringum skipið áður en það á að leggjast að bryggju hér á landi. Þess vegna gæti það verið fast við Grænhöfðaeyjar, þar sem það er núna staðsett, í langan tíma. MV Hondius. AFP Fær staðfestingu yfirvalda þegar skipið kemur Spurður nánar út í ferlið í tengslum við svona mál segir hann að ef vá telst vera af skipinu fyrir land og þjóð bregst vaktstöð siglinga og embætti landlæknis eða sóttvarnalæknis við því. Ekki sé heimilt samkvæmt hafnalögum að banna skipi að koma í höfn nema slík vá sé fyrir hendi. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir sagði við mbl.is í gær að engin ástæða væri til að grípa til aðgerða, eins og staðan er núna, vegna komu skemmtiferðaskipsins hingað til lands. Frétt af mbl.is Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt „Ef þeir telja hættu á ferð þá bregðumst við við út frá því,” segir Halldór en vaktstöð siglinga er meðal annars ætlað að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna. „Þetta skip er greinilega orðið eyrnamerkt þessari uppákomu. Áður en það kemur inn í höfn hjá mér mun ég hafa samband við viðeigandi yfirvöld, eins og sóttvarnalækni, og fá staðfest að það uppfylli þau skilyrði sem til þarf. Að öðru leyti er ég ekki að taka persónulegar ákvarðanir í tengslum við það,” bætir hann við. MV Hondius undan ströndum Grænhöfðaeyja. AFP Heimilt að skoða ef grunur er um hættu Fram kemur í reglugerð um sóttvarnavottorð og sóttvarnaundanþágur fyrir skip að vakni grunur um hættu fyrir heilsu manna um borð og ekki séu til staðar gild vottorð um sóttvarnaundanþágu eða sóttvarnavottorð fyrir skip sé heilbrigðisnefnd, að höfðu samráði við Samgöngustofu, heimilt að skoða skipið. Frétt af mbl.is Hvað er hantaveira? Ef engar vísbendingar eru um hættu fyrir heilsu manna getur heilbrigðisnefnd gefið út vottorð um sóttvarnaundanþágu fyrir skipið. Ef vart verður við hættu fyrir heilsu manna ber nefndinni að tilkynna sóttvarnalækni um hana og með fullnægjandi hætti grípa til sóttvarnaráðstafana eða sjá til þess að til þeirra verði gripið svo hún geti gefið út sóttvarnavottorð fyrir skipið. Tengdar fréttir Hantaveiran í skemmtiferðaskipi Skipið fær að leggjast að bryggju í Kanaríeyjum Yfirvöld óákveðin: Óvissa um næstu skref skipsins Grunur um að veiran hafi smitast á milli manna Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Tvö tilfelli Hantaveiru staðfest: Grunur um fimm » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Frelsisáætlunin sett á ís Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði „Hún er bara Þrista Gló“ Dæmdur til dauða fyrir morð á sjö ára telpu Umræðan Enginn einn í lokin Fáir hafa reynzt Íslandi verr Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Ökumaðurinn glímdi við geðræn vandamál Engin gögn til um samning við ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Hafnarstjóri: Vá þarf að vera fyrir hendi Frelsisáætlunin sett á ís Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði „Hún er bara Þrista Gló“ Dæmdur til dauða fyrir morð á sjö ára telpu Umræðan Enginn einn í lokin Fáir hafa reynzt Íslandi verr Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Versnar með hverju ári að óbreyttu Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article