Alræmdur norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að hafa stolið rafmyntum að verðmæti um 300 milljón dollara eða um 36,7 milljarða íslenskra króna um helgina. Þetta er stærsti þjófnaður á rafmyntum sem vitað er um á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svo háþróaður stuldur er tengdur við Norður-Kóreu en stolnar rafmyntir eru notaðar til að fjármagna þróun kjarnorkuvopna samkvæmt nefnd Sameinuðu þjóðanna. Hópurinn notar skammstöfun Norður-Kóreu í nafni sínu; DPRK Lazarus Group en DPRK er stytting á Democratic People's Republic of Korea. Nefnd Sameinuðu þjóðanna áætlar að Norður-Kórea hafi stolið yfir þremur milljörðum dollara í rafmyntum síðan 2017. Bandaríkin sökuðu Norður-Kóreu um að hafa framið einn stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar á síðasta ári, þegar rafmyntum að andvirði 1,5 milljarða dollara var stolið í sams konar ráni.
The article describes a cryptocurrency heist attributed to the DPRK Lazarus Group, a North Korean state-sponsored threat actor, but does not provide technical details on a specific vulnerability, attack vector, or method. No CVE, CVSS score, affected software versions, fixed versions, or technical workarounds are mentioned. The focus is on the scale of the theft and its connection to nation-state funding.