Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skipaðar í em­bætti skrif­stofu­stjóra hjá mennta- og barna­málaráðu­neytinu

Read Full Article →

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Lindu Heiðarsdóttur og Ragnhildi Bolladóttur í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins . Linda Heiðarsdóttir er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu skóla- og íþróttamála. Hún er með B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og er að ljúka MS-gráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri í Réttarholtsskóla frá árinu 2015 og leysti af sem skólastjóri í einn vetur. Samhliða störfum í Réttarholtsskóla var Linda hópstjóri hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á árunum 2022 til 2025 og stundakennari á menntavísindasviði Háskóla Íslands á árunum frá 2015 til 2024. Sjá einnig Beint: Mennta­dagur at­vinnulífsins Áður starfaði Linda í Laugalækjarskóla og var þar í ýmsum hlutverkum, m.a. sem aðstoðarskólastjóri, deildarstjóri, verkefnastjóri og umsjónarkennari. Ragnhildur er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Hún er með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands, auk diplómu í uppeldis- og menntunarfræði við sama skóla. Hún leggur stund á nám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands en hefur starfað sem teymisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu frá árinu 2023. Undanfarna mánuði hefur hún leitt skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu frá því skrifstofan var stofnuð. Áður starfaði Ragnhildur sem fræðslustjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands og sem sérfræðingur hjá Menntamálastofnun, auk þess að hafa verið framkvæmdastjóri Framvegis-miðstöðvar um símenntun, og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og Virk starfsendurhæfingarsjóði.

Share this article