Innlent | Morgunblaðið | 8.3.2026 | 20:50 Verðlaunuð fyrir sérstakt sófaborð María Lind Baldursdóttir var í hópi heiðraðra og er önnur frá hægri í efstu röð. Ljósmynd/Ljósmyndir Rutar og Silju Steinþór Guðbjartsson [email protected] Setja bókamerki Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fór fram á Natura Hótel í Reykjavík fyrir skömmu og þá voru 33 nýsveinar í 21 löggiltri iðngrein heiðraðir fyrir góðan árangur. Þar á meðal var María Lind Baldursdóttir, sem brautskráðist úr húsgagnasmíði í Tækniskólanum og var í hópi 10 bronsverðlaunahafa á þessari sennilega fjölmennustu hátíð IMFR til þessa. „Mig hefur alltaf langað til þess að vinna með höndunum og lengi haft áhuga á húsgögnum og hönnun þeirra,“ segir María Lind um námsvalið, en hún útskrifaðist áður sem stúdent af nýsköpunar- og hönnunarbraut við sama skóla. „Þess vegna ákvað ég að skella mér í þetta nám eftir að hafa brautskráðst með BA-gráðu úr myndlistardeild í Listaháskóla Íslands 2022.“ Hún komst reyndar ekki strax í húsgagnasmíðina vegna þess að yngri nemendur hafa forgang en greip gæsina þegar hún gafst. „Ég vann ýmis störf á meðan ég beið.“ Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík var stofnað 1867 til að efla hag íslenskra iðnaðarmanna. Tilgangur félagsins „er að efla menningu og menntun iðnaðarmanna og styrkja stofnanir sem starfa í þeirra þágu.“ Sveinsstykki Maríu Lindar var sófaborð, sem hún gerði samkvæmt teikningu sveinsprófsnefndar og fékk bronsverðlaun fyrir, en meistari hennar var Gísli Páll Sigurðsson. Sófaborð Maríu Lindar. Listaháskólinn góður grunnur María Lind starfar á verkstæði hjá Hegg innréttingum í Hafnarfirði. Hún segir að háskólanámið hafi í raun verið mjög góður grunnur fyrir iðnnámið og nú hafi hún hug á að vinna sjálfstætt við húsgagnasmíði meðfram föstu vinnunni. Hana langi til að koma sér upp eigin aðstöðu til að sinna hugðarefninu í frítímanum, því húsgagnasmíði sé ekki á hverju strái hérlendis. Þegar hún hafi öðlast meiri reynslu vilji hún bæta enn um betur og fara í framhaldsnám erlendis. „Þessu fylgir auðvitað aukinn kostnaður og því þarf ég að vinna og safna fyrir eigin vinnuaðstöðu en síðan er mögulegt að fá nýsveinastyrki og aðra styrki vegna náms erlendis.“ Sköpun heillar Maríu Lind. Hún segist hafa fundið sig vel í allri sköpun og því langi hana til að halda áfram að hanna og smíða húsgögn, jafnvel í samráði við óskir væntanlegra kaupenda. „Mér finnst það skemmtilegast og eftir að hafa öðlast meiri reynslu vil ég fara í nám þar sem flott húsgögn eru framleidd til að styrkja grunninn enn frekar. Ég er ánægð þar sem ég er en það þýðir ekkert annað en að láta sig dreyma.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt úrslit á Englandi „Kúba dregur sín síðustu andartök“ Verðlaunuð fyrir sérstakt sófaborð Sjöundi Bandaríkjamaðurinn fallinn Grátlegt hjá Loga Tómassyni Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Flúði Gasa og býr til blóm Fær tilkynningar þegar skotflaugar stefna á Kænugarð Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Bar sjónvarpið saman við brjóst Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Svikahrappar náðu milljarði 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Mjög óvænt úrslit á Englandi „Kúba dregur sín síðustu andartök“ Verðlaunuð fyrir sérstakt sófaborð Sjöundi Bandaríkjamaðurinn fallinn Grátlegt hjá Loga Tómassyni Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli Sprengt víða við Persaflóa „Þetta atvik er ótækt“ Flúði Gasa og býr til blóm Mest lesið Í gær Í vikunni Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Bar sjónvarpið saman við brjóst Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Svikahrappar náðu milljarði 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar