Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tónlistarferðalag um hálfan hnöttinn

Read Full Article →

Inga María Hjartardóttir var í síðasta mánuði ráðin í starf vörumerkjastjóra Red Bull á Íslandi og mun leiða markaðs- og kynningarmál orkudrykkjarins á Íslandi. Hún kemur til Red Bull frá Símanum þar sem hún starfaði sem markaðssérfræðingur. Hún hefur einnig unnið sem kynningarstjóri hjá Píeta-samtökunum og sá um markaðsmál hjá Samfés og Ungum athafnakonum. Inga María er með tónlistarviðskiptafræðigráðu frá Berklee College of Music í Boston en hún bjó í Bandaríkjunum í fimm ár þar sem hún starfaði við tónlist og umboðsmennsku. Tenging hennar við útlönd hófst þó þegar hún flutti til Svíþjóðar 11 ára gömul. „Mamma flutti með okkur til Svíþjóðar árið 2005 til að klára mastersnámið sitt. Það var mikil breyting og ótrúlega þroskandi eftir að hafa alist upp á Akranesi að flytja í svona fjölbreytt samfélag í tvö ár.“ Eftir að hafa klárað Fjölbrautaskólann á Vesturlandi var stefnan sett á tónlistarnám í Boston en fyrrum kennari Ingu Maríu sagði að Berklee College of Music væri eini skólinn fyrir hana. Nánar er fjallað um Ingu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article