Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr vöru­merkja­stjóri Red Bull á Ís­landi

  • What: Inga María Hjartardóttir appointed as Red Bull Iceland's brand manager
  • Impact: No direct impact on regular users
Read Full Article →

Inga María Hjartardóttir hefur verið ráðin í starf vörumerkjastjóra Red Bull á Íslandi en hún hefur þegar hafið störf og mun leiða markaðs- og kynningarmál orkudrykkjarins á Íslandi. Hún kemur til Red Bull með víðtæka og alþjóðlega reynslu úr heimi markaðsmála. Inga hefur áður unnið sem markaðssérfræðingur hjá Símanum, kynningarstjóri Píeta samtakanna og umboðsmaður í Los Angeles. „Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Ingu í teymið okkar. Red Bull hefur verið á fleygiferð síðustu mánuði og eru verkefnin í takt við það. Með ráðningu Ingu Maríu er markið sett hátt fyrir næsta vaxtarskeið Red Bull á Íslandi,“ segir Friðjón Hólmbertsson framkvæmdastjóri Steindal ehf., sem tók við sölu og dreifingu á Red Bull á Íslandi árið 2024. Sjá einnig Steindal nýr umboðsaðili San Pellegrino á Íslandi Inga María er með tónlistarviðskiptafræðigráðu frá Berklee College of Music í Boston og varði hún fimm árum vestanhafs í tónlist og umboðsmennsku. „Það er svakaleg orka í kringum allt sem Red Bull og Steindal eru að gera og ég gæti ekki verið spenntari að ganga til liðs við teymið og láta verkin tala,” segir Inga María.

Share this article