María Rosario Blöndal hefur hafið störf sem markaðsstjóri hjá Tengi. Í tilkynningu segir að hún hafi hafið störf í apríl og muni leiða markaðsstarf fyrirtækisins. María hefur víðtæka reynslu á sviði markaðs- og vörumerkjastjórnunar. Hún hefur meðal annars starfað hjá Coca-Cola á Íslandi en starfaði síðast sem sérfræðingur í markaðs- og vefmálum hjá Veritas, móðurfélagi Vistor, Distica, Artasan og Stoð. María er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík, með áherslu á stafræna miðla, auk B.S.-gráðu í markaðsfræði frá sama skóla. „Við erum mjög ánægð með að fá Maríu til liðs við Tengi. Hún býr yfir reynslu af vörumerkjauppbyggingu og stafrænum markaðsmálum sem mun nýtast vel í áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Arnar Árnason, framkvæmdastjóri Tengi.