María Kjartansdóttir er nýr sjálfbærnistjóri Póstsins en hún kemur til Póstsins frá Landsvirkjun þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri í sjálfbærni. Í tilkynningu segir að María muni vinna með starfsfólki Póstsins á fjölmörgum sviðum, t.d. fjármálasviði. Hún lauk MSc-gráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, með áherslu á samfélagsábyrgð fyrirtækja og umhverfisstjórnun, og hefur starfað á því sviði í meira en áratug. „María býr yfir víðtækri reynslu þegar kemur að sjálfbærni og stefnumótun og hefur m.a. leitt verkefni sem hafa snúið að upplýsingagjöf og innleiðingu laga, reglugerða og ýmissa staðla, þar á meðal á sviði umhverfisstjórnunar,” segir Gunnar Þór Tómasson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Póstsins. Hún segist spennt fyrir starfinu og komandi verkefnum. „Pósturinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þar eru tækifæri til að draga úr umhverfisáhrifum og skapa aukið virði með markvissri sjálfbærnivinnu.“