Sigrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin aðalbókari Póstsins en hún hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 1998 og er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í fjármálum fyrirtækja. Áður starfaði Sigrún hjá Mílu í fjórtán ár og þar af tíu ár sem fjármálastjóri. Auk þess hefur hún starfað í viðskiptagreind hjá Kaupþingi við verðútreikninga og kostnaðargreiningu hjá heildsölu Símans. „Við erum afar ánægð að hafa fengið Sigrúnu til liðs við Póstinn. Hún býr yfir víðtækri reynslu í fjármálastjórnun, reikningshaldi og greiningu og hefur mikla þekkingu á þeim kerfum sem við notum,” segir Gunnar Þór Tómasson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Sjá einnig María nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sigrún hefur einnig starfað við endurskoðun hjá Ríkisendurskoðun og er meðal annars í stjórn Rarik. „Hér ríkir greinilega góður starfsandi og það hefur verið tekið einstaklega vel á móti mér. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri spennandi vegferð sem Pósturinn er á í breyttu rekstrarumhverfi,“ segir Sigrún.