Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, hefur hafið störf í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Hún verður sérfræðingur þar eftir að hafa gegnt sömu stöðu í dómsmálaráðuneytinu eftir að hún lét af embætti ríkislögreglustjóra í nóvember. Vísir greindi frá vistaskiptum Sigríðar Bjarkar í frétt í dag og vísaði þar til skráningar starfsmanna á síðum viðkomandi ráðuneyta. Sigríður Björk hætti sem ríkislögreglustjóri eftir að í ljós kom að embættið hafði greitt ráðgjafarfyrirtæki 160 milljónir króna á fimm árum. Það varð til þess að deilt var á ríkislögreglustjóra og fjármálastjórn embættisins. Sigríður Björk skrifaði færslu á Facebook-síðu sína eftir að fréttin var birt. Hún vísar þar til þess að hún óskaði eftir flutningi úr embætti ríkislögreglustjóra í starf sérfræðings í dómsmálaráðuneytinu í stað þess að fá starfslokasamning. Sigríður Björk segist hafa viljað gera gagn en síðan ekki fundist starfskraftar hennar nýtast sérlega vel í dómsmálaráðuneytinu þar sem hún hefði verið í nefndum og starfshópum á vegum þrettán ráðherra í því embætti og fáu hægt að bæta við. Hún segir að annar taktur og ný verkefni séu í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem hún hafi mikla trú á. „Ég átti því samtal við ráðherra og í kjölfar þess óskaði ég eftir flutningi til mennta- og barnamálaráðuneytis. Sá flutningur var ákveðinn um miðjan mars og hefur því ekkert að gera með það að nýr samskiptastjóri í DMR [dómsmálaráðuneytinu] sé fréttamaðurinn sem fjallaði um mín mál enda var hann eflaust að gera sitt besta.“ Sá samskiptastjóri er Freyr Gígja Gunnarsson, fyrrverand fréttamaður RÚV.