Innlent | mbl | 22.4.2026 | 14:59 | Uppfært 15:14 Sammála gagnrýni á sjálfa sig Sigríður Björk tekur undir með gagnrýni á að embættið hafi ekki haft getu til þess að sinna verkefninu. mbl.is/Karítas Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, tekur undir gagnrýni sem fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar þar sem fjallað er um óskýra verkaskiptingu og ábyrgð þeirra sem komu að málum í Grindavík á eldsumbrotatímanum. Ríkislögreglustjóri og almannavarnadeild embættisins báru ábyrgð á aðgerðum í Grindavík og fram kemur í skýrslunni að Ríkisendurskoðun telji að verkefnið hafi reynst ríkislögreglustjóra ofviða. Sigríður Björk var ríkislögreglustjóri þegar aðgerðir fóru fram í Grindavík. „Kom í fangið á okkur“ Hún segir að þessum sjónarmiðum hafi ítrekað verið komið á framfæri við stjórnvöld á sínum tíma og bætir við að viðbragðsstaðan hafi breyst í sífellu, til að mynda úr hættustigi yfir á neyðarstig, þar sem aðrar reglur gilda. „Þetta kom í fangið á okkur og ég tek heilshugar undir þá gagnrýni sem þar kemur fram, enda var það ekki kjarnahlutverk embættisins að byggja varnargarða heldur að sinna löggæslu. Einnig gafst ekki ráðrúm til að fylgja hefðbundnum útboðsreglum, einfaldlega vegna þess að bregðast þurfti strax við.“ Frétt af mbl.is Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Með lykla að 50 húsum „Það var enginn verkfræðingur hjá embættinu og það eina sem við gátum gert var að fá utanaðkomandi aðstoð,“ segir Sigríður Björk. Hún nefnir mörg dæmi um að embættið hafi verið sett í verkefni sem tengdust ekki löggæslu. „Við vorum á einum tímapunkti komin með 50 lykla að húsum í Grindavík. Við vorum að byggja, leggja leiðslur og semja við orkufyrirtæki eða aðra aðila um verkefni sem einkaaðilar hefðu í raun átt að sinna,“ segir Sigríður Björk. „Við vorum á tímabili með tugi pípulagningamanna í vinnu við að frosttæma hús. Allt er þetta langt frá kjarnastarfsemi embættisins,“ bætir hún við. Hún segir eðlilegt að embættið fái á sig þá gagnrýni sem fram kemur í skýrslunni. Fóru eftir Veðurstofunni Meðal annars er þar minnst á að varnargarðar hafi verið byggðir óþarflega háir með tilheyrandi kostnaði. Ríkislögreglustjóra var falið að annast byggingu þeirra með sérstakri lagasetningu. „Við fórum í einu og öllu eftir mati Veðurstofunnar,“ segir Sigríður Björk. „Einnig þarf að hafa í huga að oft var unnið í kappi við tímann. Í einu tilviki kviknaði í þremur húsum og varnargarðarnir björguðu því sem bjargað varð. Þetta tókst í sjálfu sér vel þegar horft er til aðstæðna á þeim tíma,“ segir Sigríður Björk. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Harður árekstur á Reykjanesbraut Búnir að fá upp í kok á Englendingnum Gert að greiða 7 milljónir vegna myndatökuklúðurs Sammála gagnrýni á sjálfa sig Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaðarsamt ójafnvægi Borgin fór á mis við nokkra milljarða Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Sjö sækja um embætti sýslumanns Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Harður árekstur á Reykjanesbraut Búnir að fá upp í kok á Englendingnum Gert að greiða 7 milljónir vegna myndatökuklúðurs Sammála gagnrýni á sjálfa sig Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Þarf árangursríka útlendingastefnu Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Sjö sækja um embætti sýslumanns Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set