Innlent | mbl | 21.4.2026 | 15:41 Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Sigríður Björk Guðjónsdóttir flytur sig milli ráðuneyta enda málefni barna henni í blóð borin. Hún tjáir sig um skrif Vísis í dag á Facebook og segir mbl.is enn fremur frá. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@ mbl.is Setja bókamerki „Ég bara fann mig ekki alveg þarna, ég var mest að gera hluti sem ég hafði gert áður og fannst það ekki beinlínis nýtt eða krefjandi,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir fyrrverandi ríkislögreglustjóri sem leitar nú hófanna annars staðar í stjórnsýslunni og hóf störf í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Frétt af mbl.is Sigríður Björk komin í menntamálaráðuneytið Tilefni viðtalsins er Facebook-færsla Sigríðar Bjarkar í dag þar sem hún segir frá brottflutningi sínum úr starfi sérfræðings í dómsmálaráðuneytinu sem hún gegndi fyrst um sinn eftir að hún lét af embætti ríkislögreglustjóra á sínum tíma. Tilefni skrifa Sigríðar Bjarkar er hins vegar það sem hún kallar þar áhugaverða framsetningu Vísis í frétt miðilsins í dag og telur hún sér ljúft og skylt að greina frá starfatilflutningi sínum í ljósi umfjöllunar Vísis. Hugsaði sér til hreifings „Ég lét af störfum sem ríkislögreglustjóri að eigin ósk í nóvember í fyrra eftir mikið fár út af greiðslu til verktaka þar sem skýringar og samhengi komust ekki til skila. Í stað þess að fá starfslokasamning óskaði ég eftir flutningi í starf sérfræðings í dómsmálaráðuneytinu af því að mig langaði að gera gagn og varð það niðurstaðan. Þegar til kom fannst mér kraftar mínir ekki nýtast sérlega vel í ráðuneytinu enda búin að vera í nefndum og starfshópum á vegum 13 ráðherra í því ráðuneyti og fátt sem hægt var að bæta við,“ skrifar Sigríður Björk á Facebook. Enn fremur skrifar hún: „Ég átti því samtal við ráðherra og í kjölfar þess óskaði ég eftir flutningi til mennta- og barnamálaráðuneytis. Sá flutningur var ákveðinn um miðjan mars og hefur því ekkert að gera með það að nýr samskiptastjóri í DMR sé fréttamaðurinn sem fjallaði um mín mál enda var hann eflaust að gera sitt besta.“ Fréttamaðurinn sem Sigríður Björk vísar til er Freyr Gígja Gunnarsson sem tók við af Þórdísi Valsdóttur sem upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Við mbl.is segir hún: „Ég hef alltaf unnið mikið með börnum, ég var í innleiðingunni á Farsældinni og er með hugmyndir sem ég var með þar og ég var líka í Gumma Fylkis-verkefninu,“ segir hún og vísar þar til Guðmundar Fylkissonar lögreglumanns sem er löngu landskunnur fyrir störf sín í þágu barna sem saknað er sárt. Ekki æskilegt að búa til fastakúnna „Sem ríkislögreglustjóri setti ég hagsmuni barna mikið á oddinn, ég fékk greiningardeild RLS til að útbúa skýrslu á þeim vettvangi og hagsmunir barna hafa alltaf verið mér mikið hjartans mál,“ segir Sigríður og bætir því við að nýting barna á vettvangi afbrota í nágrannaríkjum Íslands hafi verið henni sérstakt áhyggjuefni. „Við þurfum að grípa strax inn í og ég hef alltaf verið þarna og er einmitt núna að fara í verkefni sem tengjast Farsældinni og ungmennunum okkar. Mér finnst þetta mjög spennandi og mikill kraftur í ráðuneytinu á þessum vettvangi, góður kraftur, og þessi frétt Vísis kom mér töluvert á óvart, ég vildi bara svara henni, ég hef verið frumkvöðull í málefnum barna og ungmenna í mínum störfum sem tengjast lögreglunni. Við viljum búa til fastan hring utan um börn og ungmenni, við viljum ekki búa til fastakúnna fyrir löggæsluna, það er einmitt það sem við viljum forðast. Við eigum að geta staðið okkur betur og ég vil bara leggja mitt af mörkum,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KAPP og Laxey skrifa undir samning Frumvarp um sóttvarnalög samþykkt Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Umræðan Homo Reykjavicus Strætó nægir að vera við stýrið – seljum vagna og rekstur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ljúfsárt að kveðja þingið „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ „Öfgakennd forsjárhyggja“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Nýjast á mbl.is » KAPP og Laxey skrifa undir samning Frumvarp um sóttvarnalög samþykkt Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Umræðan Homo Reykjavicus Strætó nægir að vera við stýrið – seljum vagna og rekstur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bílvelta á Hringbraut Bíða samþykkis stjórnvalda Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi „Öfgakennd forsjárhyggja“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Bílvelta á Hringbraut Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Kvöldævintýri þingmannsins endaði í sjónum Ragnar vill breyta lögum „Öfgakennd forsjárhyggja“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils