Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breytingar hjá Styrkási í aðdraganda skráningar

This article describes organizational changes at Styrkás hf. in preparation for a planned stock exchange listing, including the appointment of a new Chief Financial Officer with a strong risk management and auditing background. It does not describe a technical vulnerability, threat, or security incident; therefore, no CVSS score, affected versions, fixed version, or workaround are applicable. The content is purely corporate and financial in nature, with no direct security implications for IT professionals.
Read Full Article →

Styrkás hf. hefur gert skipulagsbreytingar í yfirstjórn samstæðunnar en samkvæmt tilkynningunni eru breytingarnar liður í undirbúningi fyrir frekari vöxt og fyrirhugaða skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar. Gunnar Skúlason, sem gegnt hefur stöðu fjármálastjóra Styrkás, tekur við nýrri stöðu í framkvæmdastjórn samstæðunnar sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samþættingar. Hann hefur gegnt stöðu fjármálastjóra hjá Styrkási og Kletti frá árinu 2023 og leitt uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar. Hann starfaði áður sem sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Skeljungi og ráðgjafarfyrirtækinu Expectus. Gunnar er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í aðgerðarrannsóknum frá DTU í Danmörku. Sjá einnig Skel selur í Styrkási fyrir milljarð Birna María Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi, hefur þá verið ráðin fjármálastjóri Styrkáss og mun hefja störf 1. júlí nk. Samhliða ráðningunni mun hún taka sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar. Hún kemur til Styrkás frá Deloitte þar sem hún hefur starfað í rúm 18 ár, þar af sem eigandi frá 2017. Undanfarin ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og fjármála hjá Deloitte. Birna María hóf feril sinn á endurskoðunarsviði félagsins og tók síðar við sem sviðsstjóri áhætturáðgjafar þar sem hún leiddi verkefni og frekari vöxt á sviði áhættustýringar, innri endurskoðunar og fjölbreyttrar ráðgjafar. Hún er með M.Acc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2013 og lauk Advanced Management Program frá IESE-viðskiptaháskólanum í Barcelona árið 2023. „Styrkás er á leið inn á nýtt vaxtarskeið. Gunnar mun leiða samþættingu og vöxt samstæðunnar og Birna María tekur við fjármálastjórn og mun gegna lykilhlutverki í undirbúningi skráningar í kauphöll. Við sjáum tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar samstæðunnar og erum vel í stakk búin að nýta þau,“ segir Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás.

Share this article