Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Breytingar verða í röðum bæjarstjóra

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 16:15 Breytingar verða í röðum bæjarstjóra Hátíð lýðræðis og upphaf nýrra tíma í hverjum bæ landsins. Morgunblaðið/Eggert Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Framsókn kynnir listann í Múlaþingi Efstu sæti Vors til vinstri kynnt Kristinn Jón felldi Alexöndru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Miðflokkinn Einar áfram oddviti í Skagafirði » Fleiri tengdar fréttir Talsverðar breytingar verða í hópi bæjar- og sveitarstjóra eftir kosningar í vor, samanber að nokkrir úr þeim hópi hafa að undanförnu gefið út að þeir sækist ekki eftir endurráðningu. Gangur mála er jafnan sá að meirihluti í hverju sveitarfélagi ræður framkvæmdastjóra, sem getur verið úr hópi kjörinna fulltrúa eða að utanaðkomandi aðili er ráðinn. Sá er þá trúnaðarmaður meirihlutans og hverfur strax úr starfi falli meirihluti sem tvö eða fleiri framboð standa að. Morgunblaðið kannaði stöðuna á bæjarstjóramálum í gær. Samantekt þessi er ekki tæmandi en segir sitt. Kjartan, Fannar, Regína, Bjarki og Jón Páll Nokkuð er síðan Kjartan Már Kjartansson í Reykjanesbæ gaf út að hann sæktist ekki eftir endurráðningu í bæjarstjórastarfið. Sama hefur Fannar Jónasson í Grindavík gert. Magnús Stefánsson í Reykjanesbæ segir sína stöðu enn óráðna. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, lætur af störfum á næstu vikum, samanber að hún tilkynnti nýlega að hún þekktist boð um að taka 7. sætið á lista Samfylkingar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar. Í Borgarbyggð er Stefán Broddi Guðjónsson, sem hefur gefið út að hann hyggist láta staðar numið í vor, eftir fjögur ár í starfi. Í gær tilkynnti Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri í Dalabyggð, svo að hann hætti í vor. Í pistli á Facebook segist Bjarki hafa átt góðan tíma í Dölum síðustu fjögur árin og mikilvæg framfaramál hafi náðst í gegn. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvík til tíu ára, rær á ný mið eftir kosningar. Það gerir einnig Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, sem hefur setið í bæjarstjórn fyrir Í-listann og verið bæjarstjóri síðasta eina og hálfa árið. Ásthildur vill halda áfram Þá Norðurland. „Ég er ráðin út þetta kjörtímabil hjá Norðurþingi og það hefur verið mjög gaman að vinna fyrir sveitarstjórnina að krefjandi verkefnum. Svo er bara að sjá hvað verður eftir kosningar, ég er alveg slök og hlakka bara til komandi verkefna,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, bæjarstjóri í Norðurþingi. Svipað segir Ásthildur Sturludóttir á Akureyri. „Það er ekki í mínum höndum að ákveða hvort ég haldi áfram sem bæjarstjóri eða ekki. Nýr meirihluti ákveður það að loknum kosningum í vor. Það er hins vegar ekkert launungarmál að ég vil gjarnan halda áfram að vinna að framgangi góðra mála í þágu Akureyrar og fólksins hér,“ tiltekur Ásthildur. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum til síðustu átta ára, gefur ekki kost á sér að nýju. Hún hefur á þeim tíma verið oddviti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey, sem ekki býður fram að nýju. Þá hefur Íris tilkynnt að hún sé gengin að nýju til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, þar sem hún starfaði fyrr á árum. Í Hrunamannahreppi er Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri; hún kom þangað til starfa 2022 en hafði þá áður verið bæjarstjóri í Hveragerði í meira en áratug. Í núverandi starfi er Aldís ráðin af meirihluta Sjálfstæðisflokks og hefur hún samþykkt að gegna starfinu áfram á næsta kjörtímabili haldi flokkurinn völdum. Í Árborg er Bragi Bjarnason bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem er með hreinan meirihluta. Bragi er oddviti lista flokksins áfram, svo að einhverjar líkur eru á að hann verði áfram bæjarstjóri. Kristinn í Snæfellsbæ í 28 ár Sá framkvæmdastjóri sveitarfélags á landinu sem lengst hefur setið samfellt er Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ frá árinu 1998. Starfinu hefur hann sinnt ráðinn af Sjálfstæðisflokknum í Snæfellsbæ, sem ætlar að stilla upp lista fyrir kosningarnar í vor. Kristinn hefur gefið út að hann sé tilbúinn að sinna bæjarstjórastarfinu áfram sé áhugi á því. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Framsókn kynnir listann í Múlaþingi Efstu sæti Vors til vinstri kynnt Kristinn Jón felldi Alexöndru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Miðflokkinn Einar áfram oddviti í Skagafirði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Önnur lægð á mánudag Breytingar verða í röðum bæjarstjóra Framlengir um sex ár hjá Liverpool Lambahamborgari með halloumi-osti Framsókn kynnir listann í Múlaþingi Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin kreistir markaðinn Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Aldrei gerst að dögum sé bætt við Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Vænir Ölmu Möller um lygar Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Telja auglýsingu vera löglega Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Gamla sendiráðið breytist mikið Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Önnur lægð á mánudag Breytingar verða í röðum bæjarstjóra Framlengir um sex ár hjá Liverpool Lambahamborgari með halloumi-osti Framsókn kynnir listann í Múlaþingi Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Enski boltinn „stendur undir sér“ Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Sigmundur: „Uppgjöf af hálfu ríkisstjórnarinnar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Andlát: Özur Lárusson Vænir Ölmu Möller um lygar Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Telja auglýsingu vera löglega Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Gamla sendiráðið breytist mikið Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article