- What: Traffic accident on Reykjanesbraut
- Impact: One person slightly injured
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Umferðarslys á Reykjanesbraut í norðurátt Ragnar Jón Hrólfsson Umferðarslys átti sér stað á Reykjanesbraut í norðurátt rétt eftir klukkan þrjú í dag. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er talið að einn sé slasaður en ekki alvarlega. Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Mengað vatnsból vegna hraunrennslis meira mál en biluð lögn Nokkuð af lykilinnviðum er á viðkvæmum slóðum í nýju hraunavármati Veðurstofu Íslands. Forstöðumaður hjá Veitum segir að einkum þurfi að huga að verndun vatnsbóla. Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Við erum að byggja of dýrar íbúðir“ Fjöldi íbúða á sölu er í hæstu hæðum en það sem er í boði hentar ekki þeim sem vilja kaupa. Húsnæðismálaráðherra segir vandann margþættan en augljóst sé að ekki sé verið að byggja inn í þá eftirspurn sem er þegar á markaði. Fyrir 1 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ný mynd um Michael Jackson jörðuð af gagnrýnendum Bíómyndin Michael, sem byggð er á ævi tónlistarmannsins Michael Jackson, hefur víðast hvar fengið slæma dóma eftir að hún var forsýnd fyrir tveimur dögum. Mörgum þykir hún hlífa honum full mikið. Fyrir 7 mínútumÍÞRÓTTIR Lyftingar Þrjú Íslandsmet hjá Guðnýju á EM Guðný Björk Stefánsdóttir átti virkilega góðan dag á EM í óllympískum lyftingum í dag því hún setti þrjú ný Íslandsmet. Guðný keppti í A-hópi í -69 kílóa flokki. Fyrir 8 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Samdi lagið "Fjólan" í róðri og rispaði á árina sína Til eru margir söngvar um fjólur, innlendir og erlendir. Nokkrir þeirra verða fluttir í þættinum “Heiðbláa fjólan mín fríða” á sumardaginn fyrsta kl. 15.00. Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þjóðaratkvæðagreiðslan samræmist alþjóðlegum viðmiðum Það er mat Feneyjarnefndarinnar að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samræmist alþjóðlegum viðmiðum, svo lengi sem kjósendur fái nægar upplýsingar. Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Meðvituð ákvörðun að moka minna Kostnaður við vetrarþjónustu um Víkurskarð hefur dregist verulega saman á undanförnum árum þótt bílaumferð hafi aukist talsvert. Tekin var meðvituð ákvörðun um að moka minna. Fyrir 29 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Birna, Ævar Þór og Jón hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Birna Daníelsdóttir, Ævar Þór Benediktsson og Jón St. Kristjánsson hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 fyrir bækurnar Ég bý í risalandi, Skólastjórinn og Undrarútan. Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Tekist á um leið Holtavörðuheiðarlínu 3 Fulltrúar Landsnets sátu fyrir svörum á opnum fundi í gær. Hagsmunasamtök landeiganda hafa gagnrýnt Holtavörðuheiðarlínu 3 harðlega. Fyrir 58 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Frá titlum til þriðju deildar: Hvað gerðist? Knattspyrnulið Leicester City hefur lifað tímana tvenna á undanförnum áratug. Liðið varð Englandsmeistari árið 2016 en mun nú leika í þriðju deild á næsta tímabili. Hvað hefur gengið á hjá liðinu undanfarin tíu ár? Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Treystir því að hún sé að vísa okkur veginn Sýningarstjórar segja sýningu Ástu Fanneyjar á Feneyjartvíæringnum minna áhorfandann á að þeir séu með ljósið í vasanum og geti haft áhrif á líf sitt og annarra. Ásta treysti áhorfandanum 100% og hann treysti henni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Orrustuþotur rákust á vegna myndatöku flugmanna Ástæðan fyrir árekstri tveggja suðurkóreskra orrustuþota árið 2021 var sú að flugmennirnir voru að taka myndir og myndskeið á símann. Annar flugmannanna vildi eiga minningu um sitt síðasta flug. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Barst ábending um að ungbarn hefði fengið lóð í kviðinn á líkamsræktarstöð Umboðsmaður barna sendi erindi til heilbrigðiseftirlits allra sveitarfélaga vegna ábendingar um að ungbarn hefði fengið lóð í kviðinn í líkamsræktarstöð. Hún segir mikilvægt að ung börn séu ekki látin liggja innan um þung tæki eða lóð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Tveir nýir skrifstofustjórar í mennta- og barnamálaráðuneytinu Grétar Þór Sigurðsson Linda Heiðarsdóttir og Ragnhildur Bolladóttir eru nýir skrifstofustjórar í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Stjórnarráðið Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Lindu Heiðarsdóttur og Ragnhildi Bolladóttur í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Linda er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu skóla- og íþróttamála. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla frá 2015. Ragnhildur er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Hún hefur verið teymisstjóri í ráðuneytinu frá 2023. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands og sem sérfræðingur hjá Menntamálastofnun. Skipað er í embættin til fimm ára. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á stofnunum hefst eftir helgi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur birt upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsinu á Hólmsheiði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Lufthansa ekki að fækka ferðum til Íslands Hugrún Hannesdóttir Diego Ákvörðun þýska flugfélagsins Lufthansa hefur að öllum líkindum ekki áhrif á flugferðir þess til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi Isavia. Lufthansa tilkynnti í gær að 20.000 flugferðum yrði aflýst fram í október vegna hækkandi verðs á flugvélaeldsneyti. Flugfélagið gerir ráð fyrir að með þessu sparist um 40.000 tonn af flugvélaeldsneyti. Ákvörðunin hefur einna helst áhrif á styttri ferðir. EPA / Christopher Neundorf Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hvalveiðiráðgjöf lækkuð um fimmtung Hvalur hefur ekki verið veiddur við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Hafrannsóknastofnun ráðleggur að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar á komandi tímabili. Atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um hvalveiðibann. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi Byggingu tveggja 28 þúsund fermetra verksmiðjuhúsa Hampiðjunnar á Indlandi á að ljúka síðar í sumar. Þar munu um 750 manns koma til með að vinna þegar starfsemin verður komin á fullt skrið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Landhelgisgæslan sótti slasaðan sjómann 185 sjómílur suðvestur af landinu Landhelgisgæslan sótti í morgun slasaðan sjómann af spænsku fiskiskipi. Skipið var utan íslenskrar lögsögu þegar kallið barst síðdegis í gær. Því var beint í átt til Íslands og önnuðust þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar björgunaraðgerðir. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Olía rennur um Druzhba-leiðsluna og lán ESB til Úkraínu samþykkt Björn Malmquist Móttökustöð fyrir olíu í Ungverjalandi, þar sem olía um Druzhba leiðsluna kemur á áfangastað. MTI / EPA Olía frá Rússlandi er farin að renna um Druzhba-olíuleiðsluna sem liggur um Úkraínu til Ungverjalands og Slóvakíu, sögðu embættismenn í þessum ríkjum í morgun. Olíuflutningar um leiðsluna stöðvuðust snemma á þessu ári, og stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að ástæðan hafi verið loftárásir Rússa á dælustöð sem tengist leiðslunni. Um svipað leyti í morgun varð ljóst að andstaða Ungverja og Slóvakíu við afgreiðslu á 90 milljarða evra láni Evrópusambandsins til Úkraínu væri ekki lengur fyrir hendi. Það kom í ljós á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna í Brussel í morgun, þar sem tillagan um lánið var samþykkt, sem og refsiaðgerðir ESB gegn Rússum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Maður handtekinn vegna hótana í Borlänge Hallgrímur Indriðason Hættan á skotárás í skóla í Borlänge er liðin hjá. Lögreglan tilkynnti að búið væri að handtaka mann vegna hótana um ofbeldi, sem varð til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Danil Fält upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins segir að skólarnir verði opnir eins og venjulega á morgun. Enn hefur ekki verið gefið upp hvers eðlileg hótunin er en Aftonbladet sagði frá því að hún hefði falið í sér skotárás á skóla. Lögreglubíll fyrir utan framhaldsskóla í Borlänge. Skjámynd / SVT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Boða starfsfólk á fund um hagræðingaraðgerðir Stjórnendur innan Landspítalans segja aðhaldskröfu stjórnvalda kalla á mikið endurskipulag til að þjónusta skerðist ekki. Starfsmenn sjúkrahússins hafa verið boðaðir á fund þar sem ákvarðanir um hagræðingu verða kynntar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni Fólk í úthverfum er andvígara þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu en fólk í miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur. Fólk sem gengur, hjólar og tekur strætó er hlynntara þéttingu en það sem ferðast á bíl. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Uppbygging varnargarða á Reykjanesskaga var ríkislögreglustjóra ofviða Ríkisendurskoðun gagnrýnir óskýra verkaskiptingu, skort á eftirliti með kostnaði og hvernig staðið var að ákvarðanatöku við uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga í stjórnsýsluúttekt. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða Fólk sem er komið yfir sextugt telur efnahagsstöðuna á réttu róli en ekki þau sem yngri eru. Fólk með yfir tvær milljónir í heimilistekjur á mánuði lítur ástandið bjartari augum en aðrir tekjuhópar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi Íranar skutu á gámaskip undan ströndum Óman og skemmdu það. Breskt öryggisfyrirtæki segir íranska byltingarvörðinn hafa gert árásina eftir að skipið fékk leyfi til að fara í gegnum Hormússund. Tvö skip til viðbótar hafa orðið fyrir árás. Fyrir 6 tímumINNLE