Innlent | mbl | 22.4.2026 | 16:29 | Uppfært 16:45 Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg „Orkuveitan á og rekur ómissandi innviði og það er á ábyrgð fyrirtækisins að gera skýrar áætlanir um aukinn viðnámsþrótt kerfisins,“ segir Breki. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Árni Sæberg Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Beint: Halda íbúafund með þingmönnum Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Náttúruvá í Norðlingaholti Virkjanirnar allar á hættusvæði Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins » Fleiri tengdar fréttir Skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunvá á Reykjanesskaga kallar ekki á grundvallarbreytingar hjá Orkuveitunni en styður frekar við áframhaldandi vinnu við forvarnir og varnir innviða. Sérstaklega styrkir hún málstaðinn varðandi vernd mikilvægra svæða eins og vatnsbóla í Heiðmörk, þar sem Veitur hafa lagt áherslu á að efla forvarnir. Þetta segir Breki Logason, samskiptastjóri Orkuveitunnar, í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is. Orkuveitan er móðurfélag Orku náttúrunnar, Veitna, Ljósleiðarans og Carbfix. Í nýrri skýrslu Veðurstofu Íslands um hraunvá á Reykjanesskaga kemur meðal annars fram að allar fjórar virkjanirnar á Reykjanesskaga, Reykjanesi, Hellisheiði, Nesjavöllum og í Svartsengi, séu á efsta hættusvæði. Veitukerfi, raflínur og vatnslagnir liggja einnig um þessi svæði og eru því útsett ef eldstöðvakerfin virkjast. Skoða frekari tengingu á kerfum Breki segir fyrirtækið munu halda áfram samstarfi við sveitarfélögin sem mörg hver reki hluta veitukerfa sinna sjálf. Til skoðunar séu frekari samtengingar á milli kerfis Orkuveitunnar og sveitarfélaganna og að auka þar með viðnámsþrótt í sameiningu. „Við munum nýta skýrsluna til að skerpa enn frekar á okkar greiningum og áætlunum. Skýrslan staðfestir fyrst og fremst það sem við höfum þegar verið að vinna með en hjálpar einnig til við að samræma sýn og auka skilning á helstu áhættusvæðum.“ Frétt af mbl.is Virkjanirnar allar á hættusvæði „Ljóst er að áhrif gætu orðið veruleg“ Hvaða afleiðingar hefði það fyrir almenning ef eldgos hefði áhrif á þessa staði? „Afleiðingar fara mjög eftir eðli og staðsetningu goss, en ljóst er að áhrif gætu orðið veruleg eftir sviðsmyndum, til dæmis á orku- og vatnsöryggi. Þess vegna er lögð mikil áhersla á undirbúning, viðbragðsáætlanir og að lágmarka langtímaáhrif á samfélagið, meðal annars með fjölbreyttari forðaöflun og fjölgun varaleiða.“ Getur almenningur gert eitthvað til að undirbúa sig betur? „Orkuveitan á og rekur ómissandi innviði og það er á ábyrgð fyrirtækisins að gera skýrar áætlanir um aukinn viðnámsþrótt kerfisins. Öll upplýsingagjöf og ráðleggingar um viðbrögð almennings er í samráði og samstarfi við viðeigandi yfirvöld.“ Náttúruváin sé í raun forsenda auðlindarinnar Að lokum segir Breki niðurstöður skýrslunnar ekki koma Orkuveitunni á óvart. Fyrirtækið og dótturfyrirtæki þess hafi þegar unnið með þessar sviðsmyndir í viðbragðsáætlunum, vöktun og reglulegri rýni gagna. „Jarðvarmavirkjanir byggja á jarðhita sem helst er að finna á virkum eldfjalla- og jarðhitasvæðum. Það þýðir að sú náttúruvá sem hér er til umræðu er í raun forsenda þeirrar auðlindar sem við nýtum,“ segir hann. Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Beint: Halda íbúafund með þingmönnum Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Náttúruvá í Norðlingaholti Virkjanirnar allar á hættusvæði Ekkert nýtt að eldstöð sé í nágrenni bæjarins » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekur aftur við Chelsea á sama tímabili Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Nearly 20 degrees Celsius Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Nærri tuttugu gráða hiti Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veigamikið framsal ríkisvalds Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Illa gengur að mynda stjórn í Danmörku Þarf árangursríka útlendingastefnu Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Sjö sækja um embætti sýslumanns Einn fluttur á slysadeild Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Tekur aftur við Chelsea á sama tímabili Orðalagið „að halda áfram“ umdeilt Nearly 20 degrees Celsius Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Nærri tuttugu gráða hiti Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Þarf árangursríka útlendingastefnu Illa gengur að mynda stjórn í Danmörku Fjölgunin ekki aðeins hjá ríki Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Sjö sækja um embætti sýslumanns Einn fluttur á slysadeild Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set