Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Orkuveitan hagnast milli ára þrátt fyrir samdrátt

Read Full Article →

Rekstur Orkuveitunnar skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði árið 2025. Fram kemur í tilkynningu Orkuveitunnar að sú niðurstaða sé rúmlega tveimur milljörðum betri en árið 2024 þrátt fyrir áfall hjá stórum viðskiptavini og samdrátt í tekjum hitaveitunnar. Þar segir jafnframt að rekstrartekjur hafi aukist um 2,5% milli ára, en rekstrargjöld um 1,7%. Fjárfestingar ársins 2025 námu samtals 33,4 milljörðum króna en voru 30,9 milljarðar 2024. Einn milljarður bundinn skilyrðum Stjórn Orkuveitunnar leggur til að greiddur verði arður vegna ársins að fjárhæð 4,5 milljarða króna. Þar af verði einn milljarður þó bundinn skilyrðum um hagfellda framvindu óvissuþátta á yfirstandandi ári. Ársreikningur samstæðu Orkuveitunnar var samþykktur af stjórn í dag. Auk móðurfélagsins tilheyra Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix samstæðunni. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar segist stoltur af starfsfólki og stjórnendum sem brugðust hratt við greiðslufalli hjá stærsta orkukaupanda félagsins á síðasta ári. „Þrátt fyrir krefjandi aðstæður jókst rekstrarhagnaður Orkuveitunnar um 2,4% milli ára og félagið skilaði góðri afkomu á síðasta ári. Enn er ekki útséð um heildaráhrif málsins, en við leggjum ríka áherslu á að verja fjárhagslegan styrk Orkuveitunnar þannig að félagið geti áfram staðið undir fjárfestingum og mikilvægum verkefnum í þágu samfélagsins.“

Share this article