Innlent | mbl | 22.4.2026 | 17:49 Laun hækka um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki „Með þessu lagafrumvarpi setur ríkisstjórnin mikilvægt fordæmi. Þetta fyrirkomulag sem verið hefur síðustu ár hefur ekki virkað sem skyldi,” segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra en ríkisstjórnin hefur samþykkt framlagningu frumvarps fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á lögum um laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði varanlegt viðmið um uppfærslu launa þessa hóps og að laun hópsins hækki um 3,5% hinn 1. júlí nk. í stað 9,7% hækkunar sem annars hefði verið. „Nú breytum við lögunum þannig að launaþróun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins taki betur mið af almennri þróun launa í landinu. Þetta er jákvæð og tímabær breyting sem má þakka vandaðri vinnu starfshóps forsætisráðuneytisins og nánu samráði við verkalýðshreyfinguna og fulltrúa atvinnurekenda,“ segir Kristrún. „Fyrst um sinn tryggjum við að launin hækki að hámarki um 3,5% á árunum 2026–2028, sem má segja að leiðrétti þá skekkju sem myndast hefur á síðustu árum, en þar á eftir tekur nýja fyrirkomulagið gildi og verður reynslan af því metin fyrir lok árs 2031,“ segir Kristrún. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að markmið frumvarpsins sé að skapa festu í uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna og að skapa sem víðtækasta sátt um launafyrirkomulag þeirra. „Fyrirkomulagið sem við leggjum til er til stórkostlegra bóta frá því sem nú gildir. Það hefur lengi verið samstaða á þinginu um að viðmið við uppfærslu launa skuli vera með þessum hætti. Þá er sérstaklega mikilvægt að við styðjum bæði við stöðugleika á vinnumarkaði og sýnum ábyrgð á tímum verðbólgu og hárra vaxta,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Í tilkynningu segir jafnframt að vegna nauðsynlegs undirbúnings muni nýtt viðmið ekki taka gildi fyrir uppfærslu launa 2026 og 2027. Því er lagt til að laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna hækki um 3,5% 1. júlí 2026 og 1. júlí 2027 í samræmi við kjarasamningsbundnar hækkanir sem samið hefur verið um á almennum og opinberum vinnumarkaði. Eins og fyrr segir hefðu laun þessa hóps að óbreyttu hækkað umtalsvert umfram aðra hópa 1. júlí nk. eða um 9,7%. Þá er lagt til að uppsöfnuð hækkun ársins 2028 verði að hámarki 3,5%. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Laun hækka um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Flugvél hvolfdi við lendingu ÍBV – Haukar kl. 18.30, bein lýsing Líklega á förum eftir 16 ár hjá Liverpool Tekur aftur við Chelsea á sama tímabili Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Illa gengur að mynda stjórn í Danmörku Þarf árangursríka útlendingastefnu Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Einn fluttur á slysadeild Sjö sækja um embætti sýslumanns Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Laun hækka um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Flugvél hvolfdi við lendingu ÍBV – Haukar kl. 18.30, bein lýsing Líklega á förum eftir 16 ár hjá Liverpool Tekur aftur við Chelsea á sama tímabili Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Þegar byrjað að treysta varnirnar Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Einn fluttur á slysadeild Sjö sækja um embætti sýslumanns Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Náttúruvá í Norðlingaholti Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set