Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.2.2026 | 7:00 Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Jón Múli Egilsson Prunner, sonur Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar, verður á framboðslista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í þætti Dagmála í dag en Sólveig Anna er gestur þáttarins ásamt Snorra Mássyni varaformanni Miðflokksins. Gæti stefnt í verkföll ef kjarasamningar bresta Jón Múli mun verma 11. sæti listans. Rétt áður en fregnirnar af hinu óvænta framboði voru opinberaðar í Dagmálum óð Sólveig Anna á súðum um fræðslu stjórnvalda til handa kjörnum fulltrúum um kynjajafnrétti. „Maður er sjokkeraður að fólk inni á Alþingi Íslendinga vilji virkilega tala fyrir svona bulli. Þetta er samþykkt umyrðalaust frá ríkisstjórninni. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að venjulegt fólk klifrar yfir smitvarnargirðinguna og húkkar upp með Snorra og félögum,“ segir Sólveig Anna. Þáttastjórnandi spyr þá hvort það eigi við um einhvern sem Sólveig Anna þekkir. „Sonur þinn,“ sagði Snorri þá. „Hann er að koma á lista hjá mér, hinn mikli listamaður.“ Snorri Másson varaformaður Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. mbl.is/Hallur Már Sólveig Anna að verða amma Sólveig Anna er að verða amma í fyrsta skipti en Jón Múli á von á barni hvað og hverju. Þegar sonurinn hringdi í hana árla morguns bjóst hún því við að gleðitíðindum, en símtalið fór á aðra leið. „Ég er að verða amma í fyrsta skipti og barnið á að fæðast í þessum mánuði, þannig að þegar að sonur minn hringdi óvenju snemma að morgni þá flýtti ég mér að svara. Við tölum nú alveg mikið saman og ég svara, af því að ég hugsa, 'nú er eitthvað að gerast', en þá var hann að segja mér þessar fregnir, að þeir Snorri væru búnir að húkka upp og ætluðu saman í pólitík. Ég sagði bara, 'jæja, Nonni minn',“ lýsir Sólveig Anna. „Hann er spenntari fyrir þessu en barninu núna,“ segir Snorri og bætir við. „Hann er flottur ungur maður, eins og margir á flottum lista Miðflokksins.“ Sólveig Anna lýsir Jóni Múla sem miklum listamanni. Hann hugsi frjálst eins og raunar móðir hans gerir. „Hann er með svona fríflæðisheila eins og ég, sjálfstæðar hugsanir. Fríflæðisheilar, þeir geta náttúrulega farið með mann hingað og þangað,“ segir hún og talar af reynslu. Tvær kynslóðir komma fyrir hvern íhaldsmann Jón Múli er enda ekki sá eini í fjölskyldu Sólveigar Önnu sem hefur orðið hallur undir íhaldið, eins og Sólveig Anna rifjar upp í þættinum. „Afi minn [Árni Jónsson í Múla], hann var þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og pabbi minn [Jón Múli Árnason], sonur hans, var náttúrulega gallharður kommúnisti, þannig að kannski erum við að vinna með tvær kynslóðir komma, svo íhald, tvær kynslóðir komma, svo íhald,“ segir Sólveig Anna sem heldur fast í þá von að væntanlegt ömmubarn verði kommi eins og hún sjálf og faðir hennar. Jón Múli Egilsson Prunner, sonur Sólveigar Önnu, ásamt Gunni Martinsdóttur Schlüter. Ljósmynd/Gunnur Martinsdóttir Schlüter Handtekinn vegna hvarfs Guthrie Geislaði í kjól Marilyn Monroe frá árinu 1952 Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Níu drepnir í skotárás í Kanada ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Íslendingar meðal þeirra handteknu Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Auknar líkur á þunglyndi fyrir framan skjá Börn geti myndað óeðlileg tengsl við gervigreind Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Unga fólkið hefur forgang í íbúðirnar Mun fleiri taka hlutdeildarlán Allt að sjö stiga frost í dag „Kerfisvilla“ tafði launagreiðslur Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Handtekinn vegna hvarfs Guthrie Geislaði í kjól Marilyn Monroe frá árinu 1952 Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Níu drepnir í skotárás í Kanada ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Samkomulag loks í augsýn rúmum sjö árum síðar Mun fleiri taka hlutdeildarlán Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Unga fólkið hefur forgang í íbúðirnar Mun fleiri taka hlutdeildarlán Allt að sjö stiga frost í dag „Kerfisvilla“ tafði launagreiðslur Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum

Share this article