Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Tildrög lestarslyssins óljós – Fimm í lífshættu

  • What: Serious traffic accident in North Zealand, five in critical condition
  • Impact: Authorities are investigating the cause of the accident
Read Full Article →

Danska lögreglan heitir yfirgripsmikilli og ítarlegri rannsókn á tildrögum lestarslyss á Norður-Sjálandi í morgun. Fimmtán hafa verið fluttir á sjúkrahús, þar af eru fimm í lífshættu. „Við getum ekki sagt neitt um aðdraganda slyssins að svo stöddu. Rannsóknir okkar verða að leiða það í ljós síðar,“ sagði Morten Pedersen, lögreglustjóri á Norður-Sjálandi, á blaðamannafundi. Hann hét því að tildrög slyssins yrðu rannsökuð í þaula en að nánari upplýsingar yrðu ekki veittar að svo stöddu. Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Pedersen sagði 38 hafa verið um borð þegar lestarnar skullu saman um klukkan hálf sjö að staðartíma á Gribskov-línunni milli Hillerød og Kagerup. Mikill viðbúnaður var á vettvangi en aðgerðum viðbragðsaðila er lokið, að því er danska ríkisútvarpið greindi frá.

Share this article