Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þingmaður hætt kominn á Kollafirði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 22.4.2026 | 23:55 | Uppfært 23.4.2026 10:56 Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Feðgarnir á bráðamóttöku eftir volkið í Kollafirði þar sem báðir komust þeir á kjöl. Björninn var þó ekki unninn, um það sá björgunarsveitin Kjölur á Kjalarnesi auk þess sem feðgarnir þakka sjúkraflutningafólki og starfsfólki bráðamóttöku af öllu hjarta. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Við strákurinn fórum út á sjó í frábæru vorveðri, höfum nú ekki verið þarna mikið, meira á Snæfellsnesi en á þessum tíma árs er töluverð þorskgengd þarna og við ætluðum að renna fyrir fisk,“ segir Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við mbl.is en þingmaðurinn horfðist í augu við manninn með ljáinn úti á sjó á Kollafirði á mánudagskvöldið ásamt syni sínum sautján ára. Knáir björgunarsveitarmenn af Kjalarnesi heimtu feðgana úr helju og hér á eftir fer frásögn býsna ólík því sem rætt er í sal Alþingis dagsdaglega enda þarf hún hvorki að fara gegnum aðra né þriðju umræðu. „Við sigldum út Kollafjörðinn og sveigðum svo á stjórnborða í átt að sláturhúsunum þar sem verið er að slátra svínum og kjúklingum. Við hvorum hvor á sínum bátnum, fótstignum bátum með blöðkum sem ná glettilega miklum hraða,“ segir Jón Pétur frá. Upp skalt á kjöl klífa Allt lék í lyndi þar til önnur blaðkan losnaði af bát þingmannsins. „Það var allt í lagi, ég komst alveg áfram, en þegar við ætluðum að snúa í land tengdum við bátana saman, strákurinn var á undan og ætlaði að draga mig með. Þá lenti ég í smá brasi og hallaði mér of mikið. Það er ekki erfitt að velta þessum bátum. Og fer í sjóinn,“ segir hann. Jón Pétur var klæddur regnbuxum með smekk og þegar í greipar Ægis var komið runnu buxurnar niður um þingmanninn sem þar með var með buxurnar á hælunum og heftu þær allar hreyfingar hans mjög. „Ég gat ekki hreyft fæturna almennilega og þar með ekki synt bringusund. Ég kom mér á bátinn hjá stráknum og hífði mig upp á hann en við það lyftist hann upp, blöðkurnar náðu engu taki í sjó svo hann komst ekkert áfram. Á einhverjum tímapunkti hölluðum við okkur báðir í sömu átt og bátnum hans hvolfdi líka,“ segir Jón Pétur. Jón Pétur með Birgi, björgunarsveitarmanni í Kili á Kjalarnesi, sem sótti hann á haf út. Björgunarsveitarmenn voru örsnöggir á vettvang enda fumlaus viðbrögð þeirra þaulæfð. Ljósmynd/Aðsend Drengurinn kom sér þegar á kjöl eins og Þórir Jökull skáld forðum sem hann orti fræga vísu um. „Þarna var ég búinn að vera í kannski tíu mínútur í sjónum og með buxurnar á hælunum, orðinn töluvert kaldur. Ég komst upp á bátinn til hans og við sátum þarna báðir á kilinum og fórum að hugsa um hvernig við kæmum okkur í land, við vorum innan við 200 metra frá landi og maður vildi ekkert fara að hringja í einhverja,“ segir Jón Pétur og hlær að hrakförum sínum enda lifði hann þær af. Að lokum sáu feðgarnir að þeir kæmust hvorki lönd né strönd. Köld er sævar drífa „Svo ég hringdi í Neyðarlínuna og þeir miða okkur út, ég gat lýst því nokkuð vel hvar við vorum. Þarna fann ég að ég var farinn að verða máttlítill,“ segir hann frá. Um stundarfjórðungi síðar komu björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni Kili á Kjalarnesi á fullri ferð á sæköttum, snöggir í útkallið, þrautgóðir á raunastund eins og þar segir. „Þeir bruna með okkur í land þar sem mikill mannsöfnuður beið, lögreglan, tveir sjúkrabílar og fullt af fólki. Ég spurði mig bara hvað væri að gerast, ætlaði bara að keyra heim. Sjúkraflutningamennirnir ætluðu að fara að setja út bát en hættu við á síðustu stundu og við erum teknir inn í sjúkrabíl,“ segir Jón Pétur frá. Voru þeir feðgar umvafðir hitateppum og nutu bestu þjónustu íslensks sjúkraflutningafólks sem er með huggulegri starfsstéttum að mati blaðamanns þótt hann hafi ekki beinlínis verið fluttur með sjúkrabifreið enn þá en oft rætt við sjúkraflutningafólk á mörgum vettvöngum. Jón Pétur er algengari sjón í ræðustól Alþingis en með buxurnar á hælunum í ísköldum Kollafirði. Allt fór vel að lokum hjá þeim feðgum eftir símtal til Neyðarlínu af bátskili í Kollafirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kostaðu hug þinn herða Í sjúkrabifreiðinni áttaði þingmaðurinn sig á alvöru málsins, þar voru engin jöfnunarþingsæti í boði heldur hitamælir. „Þeir eru eitthvað að tala um 32 og 33 og ég spurði bara hvort þetta væri hitastigið á okkur og það var svo. Okkur var gefið saltvatn í æð og fluttir á bráðamóttöku og við komu þangað erum við komnir upp í 36. Á bráðamóttökunni fengum við ótrúlega góða þjónustu og ég var fljótlega kominn á ról,“ segir Jón Pétur. Hann heimsótti björgunarsveitina Kjöl í dag og áttaði sig þá enn betur á köldum raunveruleikanum. „Þetta er við kletta á Kjalarnesi og ef við hefðum ekki haft símana hefði enginn orðið var við okkur. Við hefðum ekki mátt vera þarna mikið lengur, ískaldir, og ég hugsa þá hugsun ekki til enda ef við hefðum ekki getað hringt. Strákurinn hefði kannski getað synt í land, ég veit ekki með mig,“ segir Jón Pétur en símar þeirra beggja þoldu vel að vera heillengi í sjónum. Hér skaltu lífið verða „Það hefði auðvitað ekki verið skemmtilegt að enda sitt líf þarna en ég hugsa það ekki til enda með strákinn minn,“ segir þingmaðurinn í hreinskilni. Að lokum þakkar hann björgunarsveitarfólki af heilum hug. „Skilaboðin eru bara þau að björgunarsveitirnar eru að vinna ómetanlegt starf, þetta eru hetjur Íslands, alltaf tilbúnar að fórna sínum tíma auk allra æfinganna. Sjúkraflutningafólkið var líka rosalega fínt, algjörir snillingar, við fengum áfallahjálp í bílnum og ég veit ekki hvað. Ég er bara einstaklega þakklátur og ég er óendanlega þakklátur þeim aðilum sem komu að þessari björgun þar sem líf voru í húfi,“ segir Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem komst lífs af úr köldum greipum Kollafjarðar. Vísa Þóris Jökuls Steinfinnssonar á kilinum í heild sinni sem hér hefur verið flutt að hluta í millifyrirsögnum: Upp skalt á kjǫl klífa, kǫld er sævar drífa; kostaðu hug þinn herða, hér skaltu lífit verða; skafl beygjattu skalli, þótt skúr á þik falli; ást hafðir þú meyja; eitt sinn skal hverr deyja. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » HM í hættu hjá Lamine Yamal? Wants to explore mitigation measures in cooperation with the state Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Hreinsun Hormússunds gæti tekið sex mánuði Eiga ekki roð í meistarana Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað vildu þeir til Mexíkó? Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Björn Steinar leikur í Notre Dame Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Þrír hafa verið náðaðir Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Logi Einarsson fundaði með Apple Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Svona verður sumardagsveðrið Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » HM í hættu hjá Lamine Yamal? Wants to explore mitigation measures in cooperation with the state Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Hreinsun Hormússunds gæti tekið sex mánuði Eiga ekki roð í meistarana Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Ferðamaðurinn er enn ófundinn Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Þrír hafa verið náðaðir Sviptur ökuréttindum á staðnum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Logi Einarsson fundaði með Apple Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Svona verður sumardagsveðrið Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article