Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Níu drepin í skotárásum í smábæ

  • What: A shooting in Tumbler Ridge, British Columbia, Canada resulted in multiple fatalities and injuries.
  • Impact: The small town of Tumbler Ridge is in mourning after the tragic event.
Read Full Article →

Sjö manns voru drepnir og 27 særðust í skotárás í gagnfræðaskóla í Tumler Ridge í Bresku-Kólumbíu í Kanada í gær. Lögreglunni barst tilkynning um vopnaðan árásarmann í Tubler Ridge síðdegis að staðartíma. Þegar lögreglan kom á vettvang voru sex einstaklingar látnir og sjöunda fórnarlambið lést á leið á spítala. Tveir hinna særðu eru með alvarlega áverka en 25 eru með minni háttar áverka. Árásarmaðurinn svifti sig lífi en nafn og aldur árásarmannsins hefur ekki verið upplýst. Þá fundust tveir einstaklingar látnir í heimahúsum og talið er að sami árásarmaður hafi verið að verki. Mark Carney forsætisráðherra Kanada sagðist vera miður sín yfir þessum hryllilegu árásum og vottaði aðstandendum og vinum fórnarlambanna samúð sína í færslu á samfélagsmiðli í gær. Tumbler Ridge er smábær með um 2.400 íbúa og staðsettur um 1.100 kílómetra norður af Vancouver. Skotárásir eru mjög sjaldgæfar í Kanada en 11 manns voru drepnir í Vancouver í apríl sl. þegar bíl var ekið í mannfjölda á menningarhátíð Filippseyinga.

Share this article