Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sex börn á meðal fórnarlamba í Tumbler Ridge

  • What: A shooting occurred at a school in Tumbler Ridge, British Columbia, resulting in multiple fatalities.
  • Impact: The incident involved the deaths of students and a teacher, along with injuries to others.
Read Full Article →

Átján ára kona er grunuð um að hafa banað móður sinni og stjúpbróður ásamt fimm nemendum í gagnfræðaskóla og einum kennara í bænum Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu á þriðjudag. Kanadíska lögreglan birti nafn hennar í gær. Jesse Van Rootselaar svipti sig lífi og fannst látin á vettvangi. Lögreglan segist hvorki vita um tildrög né ástæðu árásarinnar en á síðustu árum hafi hún haft afskipti af Rootselaar vegna andlegrar heilsu hennar. Haft er eftir kanadísku lögreglunni að hún hafi fæðst drengur en hafið kynleiðréttingarferli fyrir sex árum. Lögreglan leiðrétti í gær upplýsingar um fjölda þeirra sem létu lífið. Upphaflega var talið að stúlka sem er lífshættulega særð hefði látist. Rootselaar er sögð hafa skotið móður sína og ellefu ára stjúpbróður til bana á heimili þeirra áður en hún fór í gagnfræðaskólann og hóf skothríð. Einn kennari, 39 ára kona, þrjár 12 ára stúlkur og tveir drengir 12 og 13 ára létust. Tólf ára stúlka er í lífshættu ásamt einum öðrum. 25 til viðbótar særðust, en ekki lífshættulega. Ekki er vitað hvernig Rootselaar komst yfir skotvopnin tvö sem fundust á vettvangi, þau voru ekki skráð á hana. Í Tumbler Ridge búa aðeins um 2400 manns, hundruð komu saman í gærkvöldi til að minnast fórnarlambanna. Bæjarstjórinn Darryl Krakowka þakkaði stjórnvöldum í Kanada fyrir að hafa brugðist snöggt við, meðal annars með því að senda í bæinn ráðgjafa fyrir þau sem eiga um sárt að binda. Krakowka reyndi að halda aftur tárunum þegar hann talaði um mikilvægi þess að veita þeim sem hafa misst ástvini stuðning, sérstaklega þegar fólk missi börn. Rannsókn lögreglu snýst nú helst að því að leiða í ljós hvar og hvernig Rootselaar varð sér úti um vopnin.

Share this article