Innlent | mbl | 23.4.2026 | 13:59 Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Sólveig segir formann VR ekki þurfa á launuðum aðstoðarmanni að halda. Samsett mynd/Hallur Már/Eyþór Setja bókamerki Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Eflingar, furðar sig á nýrri ráðningu Karítasar Ríkharðsdóttur til VR. Hún segir það furðulegt að Halla Gunnarsdóttir formaður VR ráði sér aðstoðarmann. „Það vekur athygli að formaður stærsta verkalýðsfélags landsins, VR, hefur ráðið sér pólitískan aðstoðarmann, líkt og ráðherrar og fyrirmenni ýmis gera,“ skrifar Sólveig í færslu á Facebook en greint var frá því í gær að Karítas hefði hafið störf hjá félaginu þar sem hún er titluð sem sérfræðingur á skrifstofu framkvæmdastjóra. Frétt af mbl.is Karítas úr bankanum í verkalýðsmálin Veit fátt um ýmislegt „Athyglin vaknar vegna þess að verkalýðsfélag er ekki ráðuneyti og formaður þess er ekki valinn af félagsfólki fyrst og fremst til að tryggja eigin völd og gera eigin vinnu auðveldari. Því geri ég allavega ráð fyrir,“ skrifar Sólveig. „En ég viðurkenni þó að ég veit í raun afskaplega fátt um ýmislegt, kannski sérstaklega um það hvernig valdakona á uppleið í samfélaginu hegðar sér – jafn fátt og ég veit margt um annað,“ stendur í færslunni. Þá skrifar hún mikið um reynslu sína af stjórnunarstöðum innan verkalýðshreyfingarinnar. „Það sem ég tel mig líka vita mikið um er að styrkur raunverulegs leiðtoga verkalýðsfélags byggist ekki á pólitískri aðstoð eða sérútbúnum stöðum í kringum embætti formanns,“ skrifar hún. Frétt af mbl.is Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Formaður þurfi ekki á aðstoðarmanni að halda Hún segir styrkinn byggjast fyrst og fremst á því að félagsfólk geti treyst því að formaður boði ekki eitt og ástundi svo annað. „Formaður þarf að vera með athyglina öllum stundum á kjörum félagsfólks og tilveruskilyrðum, þarf að vera tilbúinn til að taka þá slagi sem taka þarf, og þarf að gæta þess í hvívetna að setja hagsmuni félagsfólks ávallt í fyrsta sæti.“ „Ég tel mig vita að formaður í verkalýðsfélagi á ekki að þurfa á sérstökum launuðum pólitískum aðstoðarmanni að halda – pólitískir aðstoðarmenn formanns eru stjórn, trúnaðarráð, samninganefndir og svo félagsfólk allt. Frá þessu fólki kemur sú pólitík sem formaður á að fylgja – þetta er öll sú pólitíska aðstoð sem hann þarf.“ Svo veltir hún fyrir sér hvaða verkefnum aðstoðarmaður formanns VR ætti að sinna. „Kannski verður fyrsta verkefnið að aðstoða við ræðuskrif fyrir 1. maí en á hátíðarhöldum verkalýðshreyfingarinnar í miðbæ Reykjavíkur verður formaður VR eini ræðumaðurinn.“ Frétt af mbl.is Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » KR-ingar að niðurlægja Eyjamenn – staðan 0:6 Hugarfarið að verða betri á hverjum degi „Ég fór á Boozt og fann krúttlegan loftbelg“ Lilja Alfreðsdóttir þeytti skífum Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja bjóða fjölbreyttari lausnir í leikskólamálum Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Ekkert metið hvort meðferð skilar árangri Ferðamaðurinn er enn ófundinn Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » KR-ingar að niðurlægja Eyjamenn – staðan 0:6 Hugarfarið að verða betri á hverjum degi „Ég fór á Boozt og fann krúttlegan loftbelg“ Lilja Alfreðsdóttir þeytti skífum Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Björn Steinar leikur í Notre Dame Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Mest lesið Í gær Í vikunni Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Drakk 30 kókómjólkurfernur á 48 tímum Logi Einarsson fundaði með Apple Segir ESB opið fyrir að veita Íslandi undanþágur Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum