Norðurál gangsetti aðra af tveimur kerlínum í álveri félagsins á Grundartanga í vikunni. Móðurfélagið Century Aluminum Company greinir frá þessu í kauphallartilkynningu og bendir á að framleiðslan hafi hafist nokkrum mánuðum á undan áætlun. Félagið segir að starfsmenn Norðuráls hafi gangsett fyrstu kerin í annarri kerlínunni á Grundartanga og muni halda áfram að endurræsa þau sem eftir eru með það að markmiði að full afköst náist fyrir lok júlí. Norðurál tilkynnti þann 21. október síðastliðinn að framleiðsla hafi verið stöðvuð í annarri af tveimur kerlínum álversins á Grundartanga í kjölfar bilunar í tveimur spennum. Það olli því að álframleiðsla á Grundartanga skertist um tvo þriðju. Sjá einnig Norðurál áætlar að framleiðsla hefjist aftur í apríl Í nóvember sl. gerðu áætlanir Norðuráls ráð fyrir að geta skipt út spennunum á fjórða ársfjórðungi. Í febrúar greindi félagið frá því að gert væri ráð fyrir að hægt væri að gera við hina biluðu spenna og nota þá tímabundið þar til nýjar spennar berast. Fyrir vikið gæti framleiðsla hafist á ný mun fyrr en fyrst var talið. Í tilkynningu Century Aluminum kemur fram að búið sé að panta nýja spenna og gert sé ráð fyrir að þeir verði afhentir í haust. „Frá upphafi hefur legið fyrir að tekið gæti heilt ár að fá nýja spenna til landsins og enn er áætlað að þeir verði komnir og tilbúnir til uppsetningar næsta haust. Til að stytta þann tíma sem kerlínan liggur niðri hófst strax vinna við að athuga hvort hægt væri að gera við biluðu spennana og nota þá tímabundið, þar til þeir nýju kæmu til landsins,“ segir í tilkynningu frá Norðuráli. „Sú vinna, sem fór fram í nánu sambandi við hönnuð og framleiðanda búnaðarins, hefur skilað því að hægt verður að hefja fulla framleiðslu nokkrum mánuðum fyrr en ella.“ Norðurál rifjar upp að ákveðið var að fækka ekki í starfsmannahópnum í kjölfar bilunarinnar. Starfsfólk álversins hafi undanfarna mánuði unnið við að gera kerlínuna tilbúna fyrir endurræsingu. „Ljóst er að fyrirtækið væri ekki jafnvel í stakk búið til að hefja framleiðslu og raun ber vitni ef ekki væri fyrir það einvala lið sem hjá Norðuráli starfar.“ Forstjóri Century Aluminum segist í téðri kauphallartilkynningu vera stoltur af teymi félagsins á Grundartanga sem hafi unnið sleitulaust að því að hefja framleiðslu í seinni kerlínunni á ný í krefjandi aðstæðum.