Bilun í tveimur rafspennum álvers Norðuráls á Grundartanga í október olli því að álverið hefur verið keyrt á um 30% afköstum í hálft ár. Á meðan beðið er eftir nýjum rafspennum hefur verið unnið að viðgerð á þeim gömlu. Móðurfélagið Century Aluminum Company greindi frá því í kauphallartilkynningu á föstudaginn að fyrstu kerin í kerlínu 2 hefðu verið endurræst. Starfsmenn Norðuráls muni halda áfram að endurræsa þau sem eftir eru með það að markmiði að full afköst náist fyrir lok júlí. Áætlað er að nýir rafspennar komi til landsins í haust. Orkuveita Reykjavíkur og dótturfélagið ON Power hafa staðið í deilum við Norðurál um kaupskyldu á raforku eftir rekstrarstöðvunina í október. OR vill fá greitt samkvæmt samningi en lögmenn Norðuráls hafa hafnað því. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins kom höfnunin flatt upp á stjórnendur OR. Fjallað er um málið í nýbirtum ársreikningi Reykjavíkurborgar en það var raunar einnig gert í ársreikningi Orkuveitu Reykjavíkur. „Norðurál er einn stærsti viðskiptavinur ON Power eins af dótturfélögum Orkuveitunnar og hefur stöðvunin því umtalsverð áhrif á rekstur ON Power og þar með á rekstur Orkuveitunnar,“ segir í skýringu við ársreikningana. „Aðilum kemur ekki saman um hvort Norðuráli beri að standa við kaupskyldu samnings og greiða fyrir samningsbundið magn þrátt fyrir að veita því ekki viðtöku en Norðurál ber fyrir sig Force Majeure aðstæður. Slíku hefur ON Power hafnað en ljóst er að útkljá þarf slíkt fyrir gerðardómi og hefur Orkuveitan og ON Power hafið undirbúning að slíku máli.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina heild hér .