Bilunin, sem varð í álveri Norðuráls á Grundartanga í október síðastliðnum, kom á slæmum tíma. Álverið hefur verið keyrt á ríflega 30% afköstum síðasta hálfa árið á sama tíma og álverð hefur hækkað um 29%. Í lok apríl greindi móðurfélagið, Century Aluminum Company, frá því að endurræsing væri hafin og er nú gert ráð fyrir því að álverið verði komið í fullan rekstur í lok júlí. Sjá einnig Álverð hækkar um 50% á einu ári Framleiðsluverð stóriðju hækkar Hækkandi verð á áli hefur bein áhrif á íslenskt efnahagslíf enda er ál mikilvæg útflutningsvara. Vísitala framleiðsluverðs sýnir þetta vel en hún mælir verðþróun á framleiðsluvörum þegar þær eru seldar frá framleiðendum. Vísitalan hefur verið notuð frá árinu 2003 og er tilgangurinn með henni að vera verðlagsmælikvarði fyrir framleiðslustarfsemi landsins, sem er frábrugðinn vísitölu neysluverðs, sem miðast við neyslu heimilanna í landinu. Vísitala framleiðsluverðs nýtist því sem annar mælikvarði á ástand, horfur og þróun hagkerfisins. Á fyrstu þremur mánuðum ársins hækkaði vísitala framleiðsluverðs um tæp 4% en framleiðsluverð stóriðju hækkaði um 7% á sama tímabili. Þess má geta að á fyrstu þremur mánuðum ársins var meðalálverð í kringum 3.200 dollarar tonnið en í apríl var það um 3.600 dollarar. Álverð hækkar Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2026 hefur meðalstundarverð á einu tonni af áli verið 3.296 dollarar. Meðalverð á 3ja mánaða framvirkum samningum hefur verið 3.282 dollarar. Á árinu 2025 var meðalstundarverð fyrir eitt tonn af áli 2.707 dollarar. Meðalverð á 3ja mánaða framvirkum samningum var 2.716 dollarar. Að meðaltali hefur álverð því hækkað á milli áranna 2025 og 2026 um 22% sé miðað við stundarverð og 21% sé miðað við 3ja mánaða framvirka samninga. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesð fréttina í heild hér .