Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aðstoðuðu skipstjóra sem fékk veiðarfæri í skrúfuna

  • What: Fishing boat with engine failure rescued
  • Impact: Maritime safety and emergency response in Patreksfjord
Read Full Article →

Áhöfn björgunarskipsins Varðar II frá Patreksfirði var kölluð út á efsta forgangi fyrir hádegi í dag til að aðstoða skipstjóra lítils fiskibáts sem hafði fengið veiðarfæri í skrúfuna og orðið vélarvana. Bátur hans var þá nálægt landi utarlega í firðinum. Það þótti vissara að hafa hraðar hendur þrátt fyrir rólegheitaveður, að því er segir í tilkynningu Landsbjargar, en bátinn rak hægt. Vörður hélt úr höfn á Patreksfirði klukkan 11:21, um 10 mínútum eftir að áhöfnin var kölluð út. Um tuttugu mínútum síðar var Vörður II kominn að fiskibátnum og dráttartaug var komið á milli. „Skipin eru nú komin heilu og höldnu til Patreksfjarðar og verið að gera Vörð II kláran á ný,“ segir í tilkynningu. Seinna á árinu er væntanlegt nýtt björgunarskip á Patreksfjörð. Það er í smíðum í Finnlandi.

Share this article