Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Von á sjöunda og áttunda skipinu

This article does not describe a software vulnerability, threat, or attack vector; it is a news report about the Icelandic Association for Search and Rescue (SL) acquiring new rescue vessels from a Finnish shipyard. Therefore, no technical security summary containing CVSS scores, affected versions, or patches can be provided.
Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 7.5.2026 | 14:30 Von á sjöunda og áttunda skipinu Áttunda skipið er nú á lokametrunum og er gert ráð fyrir að það verði afhent til Patreksfirðinga í haust, mögulega strax í lok ágúst. Ljósmynd/Landsbjörg Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Fulltrúar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg (SL) eru nú staddir í bænum Kokkola við Botnhaf í Finnlandi til að taka út smíði skipa sem bætast munu við íslenska björgunarskipaflotann. Verkefnið er eitt það umfangsmesta sinnar tegundar á Íslandi en sex skip hafa þegar verið tekin í notkun og stefnt er að því að þau verði þrettán talsins þegar upp er staðið. Skipin sem nú eru í smíði hjá skipasmíðastöðinni Kewatec verða sjöunda og áttunda skipið og það níunda er þegar á teikniborðinu þar ytra. „Við erum í reglulegri ferð til að taka þetta út,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi SL en þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans var hann einmitt staddur í skipasmíðastöðinni. „Við erum hér með skipaverkfræðing og úttektaraðila frá Det Norske Veritas að gera úttekt á skipinu sem verður afhent núna í júní. Það fer á Vopnafjörð.“ Frétt af mbl.is Nýju björgunarskipin eins og vítamínsprauta Níunda skipið á næsta ári Þá segir hann að næsta skip sé á lokametrunum í skipasmíðastöðinni en sé ekki enn þá komið á flot. Gert er ráð fyrir að það verði afhent í haust en bækistöð þess verður á Patreksfirði. Aðspurður hvenær von sé á níunda skipinu segir Jón Þór að það verði afhent á næsta ári og líklegt þyki að það fari í Neskaupstað. Verkefnið er gríðarlegt að umfangi og Jón Þór dregur ekkert undan í þeim efnum. „Þetta eru þrettán skip í heildina, þetta er verkefni upp á ríflega fjóra milljarða. Ekkert félag hefur ráðist í svona endurnýjun eða fjárfestingu,“ útskýrir hann og bendir á að sá björgunarskipafloti sem verið er að skipta út nú hafi á sínum tíma verið keyptur af Konunglegu bresku sjóbjörgunarsamtökunum þegar ný skip voru keypt þar á bæ. „Þau komu notuð til okkar og voru komin til ára sinna þá, svo þau eru orðin óþægilega gömul núna, sum hver að nálgast fertugsaldurinn,“ segir hann. Skipasmíðastöðin Kewatec er staðsett í finnska bænum Kokkola við Botnhaf. Ljósmynd/Landsbjörg Fínkemba skipið fyrir afhendingu Íslensku sjóbjörgunarskipin eru í grunninn hönnuð af Íslendingum, einkum skipaverkfræðingnum Kára Logasyni, en þarfagreining er framkvæmd af SL. Úttektin sem nú er framkvæmd miðar að því að gera lokaathugasemdir áður en Vopnafjarðarskipið verður afhent. „Nú erum við hér með skipaverkfræðinginn og tvo aðra sem hafa mest verið í þessu verkefni. Þeir eru núna að skríða um allt skip með vasaljós og stækkunargler og tína allt til sem þeir sjá,“ segir Jón Þór. „Við gerum síðan lokaathugasemdir núna áður en við tökum við skipinu og þá fær skipasmiðurinn nokkra daga til að bregðast við þeim.“ Að því búnu verður skipinu siglt til Árósa þaðan sem það verður flutt heim til Íslands með Eimskip. Skipið sem afhent verður í júní fer á Vopnafjörð. Ljósmynd/Landsbjörg Á eftir að semja um þrjú skip Einkar vel hefur gengið að smíða skipin og eru þau öll vel á áætlun. „Þetta hefur verið gert í virkilega góðri samvinnu við íslenska ríkið sem hefur komið myndarlega að verkefninu, en ríkið fjármagnar 50% af kaupverði hvers skips,“ útskýrir Jón Þór. Fyrir liggur viljayfirlýsing frá stjórnvöldum um smíði tíu skipa en verið er að funda um síðustu þrjú. Jón Þór segir að með komu skipanna verði bylting hvað varðar öryggi sjófarenda og viðbragðsgetu við strendur landsins. „Farsvið skipanna er 200 mílur og það er með einföldum hætti hægt að stækka það eða víkka en staðsetningin hefur alltaf verið ákveðin í góðri samvinnu við Landhelgisgæsluna,“ segir hann. „Því miður er alltaf bara eitt skip Gæslunnar á sjó, þannig að þrettán björgunarskip sem eru í stöðugu viðbragði eru mjög dýrmæt viðbót.“ Í úttektinni sem nú fer fram er skipið grandskoðað Skipasmiður hefur nokkra daga til að bregðast við athugasemdum áður en skipið er sent frá skipasmíðastöðinni. Ljósmynd/Landsbjörg Vopnafjarðarskipinu verður siglt til Árósa, þaðan sem það verður flutt heim með Eimskipi. Ljósmynd/Landsbjörg Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Lægsta stofnvísitala þorsks síðan 2011 Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun Sjötugur og gerir út á eikarbát Þorskur og kropp af karfa Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Lægsta stofnvísitala þorsks síðan 2011 Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun Þorskur og kropp af karfa Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Sjötugur og gerir út á eikarbát Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Herjólfur III verður klár í næstu viku Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Gera bátana klára á strandveiðar Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Fleira áhugavert Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Stefnir í sögulegt afhroð fyrir Starmer Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 7.5.26 625,65 kr/kg Þorskur, slægður 7.5.26 823,78 kr/kg Ýsa, óslægð 7.5.26 313,29 kr/kg Ýsa, slægð 7.5.26 309,82 kr/kg Ufsi, óslægður 7.5.26 213,88 kr/kg Ufsi, slægður 7.5.26 342,21 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 7.5.26 347,12 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 7.5.26 Þórdís SI 6 Handfæri Þorskur 784 kg Samtals 784 kg 7.5.26 Anna ST 83 Handfæri Þorskur 792 kg Ýsa 5 kg Karfi 1 kg Samtals 798 kg 7.5.26 Drafnar ÍS 12 Handfæri Þorskur 754 kg Samtals 754 kg 7.5.26 Pési ST 73 Handfæri Þorskur 820 kg Samtals 820 kg 7.5.26 Lukka SI 57 Handfæri Þorskur 873 kg Karfi 8 kg Samtals 881 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Lægsta stofnvísitala þorsks síðan 2011 Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun Sjötugur og gerir út á eikarbát Þorskur og kropp af karfa Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Lægsta stofnvísitala þorsks síðan 2011 Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun Þorskur og kropp af karfa Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Sjötugur og gerir út á eikarbát Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Herjólfur III verður klár í næstu viku Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Fiskur tryggir ekki fæðuöryggi í stríði Gera bátana klára á strandveiðar Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Fleira áhugavert Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ ESB-ferlið hófst strax 2025 X26 - Borgarafundur Akureyri 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 7.5.26 625,65 kr/kg Þorskur, slægður 7.5.26 823,78 kr/kg Ýsa, óslægð 7.5.26 313,29 kr/kg Ýsa, slægð 7.5.26 309,82 kr/kg Ufsi, óslægður 7.5.26 213,88 kr/kg Ufsi, slægður 7.5.26 342,21 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 7.5.26 347,12 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 7.5.26 Þórdís SI 6 Handfæri Þorskur 784 kg Samtals 784 kg 7.5.26 Anna ST 83 Handfæri Þorskur 792 kg Ýsa 5 kg Karfi 1 kg Samtals 798 kg 7.5.26 Drafnar ÍS 12 Handfæri Þorskur 754 kg Samtals 754 kg 7.5.26 Pési ST 73 Handfæri Þorskur 820 kg Samtals 820 kg 7.5.26 Lukka SI 57 Handfæri Þorskur 873 kg Karfi 8 kg Samtals 881 kg Skoða allar landanir »

Share this article