Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Tveir drepnir í aðgerðum bandaríska hersins gegn meintum fíkniefnasmyglbátum

  • What: U.S. military strikes against alleged drone attacks
  • Impact: Civilian casualties and international criticism of military actions in the Middle East
Read Full Article →

Bandaríski herinn drap tvo í árás á meintan fíkniefnasmyglbát í gær í Austur-Kyrrahafi. Þar með hafa 182 verið drepnir í aðgerðum bandaríska hersins gegn fíkniefnasmygli. Að minnsta kosti sjö samskonar aðgerðir hafa verið gerðar í þessum mánuði, en aðgerðirnar beinast sérstaklega að þeim sem Bandaríkjastjórn hefur skilgreint sem fíkniefnahryðjuverkamenn. Bandaríkjastjórn hefur þó ekki lagt fram neinar sannanir fyrir því að áhafnir báta og skipa sem ráðist er á séu viðriðnar fíkniefnasmygl. Aðgerðirnar hafa verið gagnrýndar af sérfræðingum í alþjóðalögum og af mannréttindasamtökum sem líkja aðgerðunum við aftökur án dóms og laga. Gagnrýnendur segja að svo virðist sem aðgerðirnar beinist gegn almennum borgurum sem Bandaríkjunum stafi ekki bein ógn af.

Share this article