Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ná nákvæmari vöktun á landinu

  • What: Iceland's Meteorological Office has implemented a new earthquake monitoring system called SeisComP.
  • Impact: The new system provides more accurate monitoring of seismic activity in Iceland, replacing the older SIL system.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 11:30 Ná nákvæmari vöktun á landinu Við höfum lagað kerfið að ströngum kröfum íslenskra aðstæðna sem eru ekkert auðveldar, segir Kristín Jónsdóttir. mbl.is/Sigurður Bogi „Skjálftavirkni er yfirleitt fyrsta merki um að eldstöðvakerfi sé að vakna. Þess vegna er nákvæm vöktun á landinu mikilvæg og hún er okkur enn betur möguleg með nýju kerfi,“ segir Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Mikils er vænst af þeirri nýju tækni á sviði jarðskjálfamælinga sem stofnunin hefur tekið í notkun og verið er að innleiða nú. Nýja tölvukerfið heitir SeisComP og er nútímalegra og hefur meiri sveigjanleika en SIL-kerfið, sem hefur verið í notkun frá árinu 1991. Nú er verið að færa gögn úr eldra kerfi í SeisComP, en mikilvægt er að söguleg samfella í skráningu haldist. Allt tekur þetta sinn tíma en þróun, innleiðing og uppsetning SeisComP hefur tekið um það bil fimm ár. Kerfið er öruggt í rekstri „Nýja kerfið er fyrst og fremst öruggara í rekstri en hið fyrra og tryggir að mælingar detti aldrei út. Þetta er mikilvægt fyrir okkur sem höfum það hlutverk að vara við náttúruvá. Við reiðum okkur á jarðskjálftavirkni til að sjá hvar spenna í jarðskorpunni er mikil, t.d. í tengslum við kvikuhreyfingar. Þá er mjög mikilvægt að Veðurstofan geti með tilliti til hugsanlegrar framvindu gefið hratt upplýsingar um hvar og hversu stór skjálftinn var,“ segir Kristín sem er þjóðinni vel kunn sem skýrandi og sögumaður í náttúruhamförum síðustu ára. Sumar af þeim upplýsingum sem nýja mælikerfið gefur eru aðeins vísindamönnum aðgengilegar og fæstum öðrum læsar. Margt er þó öllum opið svo sem Skjálftalísa , gagnvirk kortavefsjá sem er uppfærð jafnhliða yfirfærslu mælinga skjálfta milli kerfa. Sjálftalísan góða sýnir greiningu á jarðskjálftavirkni; notandi getur valið svæði og tímabil og sér hvernig virkni þróast, til dæmis fjölda skjálfta á dag og fleira. Þekkt er að fjöldi leikamanna, áhugafólk um náttúruvísindi, fylgist vel með skjálftum, rétt eins og aðrir sem vakta úrslitin í enska boltanum, skoðanakannanir og fleira þannig. Hér fá því áhugasamir nokkuð fyrir sinn snúð. „SIL-kerfið var mjög framúrstefnulegt á sínum tíma, nýtti m.a. tauganet og gat greint mjög litla skjálfta. Það var stillt til mikillar næmi og á sama hátt og Seiscomp hefur verið stillt með tilliti til smáskjálfta,“ segir Kristín. „Nýja kerfið er annars þannig að auðvelt er að bæta við nýjungum og einingum, sem er mikilvægt, svo ör er þróun allra tölvukerfa. Við höfum lagað kerfið að ströngum kröfum íslenskra aðstæðna sem eru ekkert auðveldar, hér er mikið náttúrulegt suð af hafi og í vindi.“ Mælar stilltir eftir virkni Þótt nýtt tölvukerfi sé komið þarf engu að breyta við jarðskjálftamæla Veðurstofunnar en þeir eru um 100 talsins. Þeir eru margir við skil jarðflekanna og eldgosabeltið sem liggur þvert í gegnum landið frá Reykjanesi og svo áfram til norðausturs. Eðlilega er fjöldi mæla við Grindavík og á Reykjaneskaga og þeir sýna meðal annars þær hræringar sem nú eiga sér stað suður við Eldey. Þá eru mælar sem vakta Ljósufjallakerfið á Snæfellsnesi og Bárðarbungu svo aðrir heitir reitir séu nefndir. „Með nýju kerfi náum við bestu nýtingu tiltölulega fárra mæla yfir stórt svæði og þróum þá stillingar miðað við ólíka virkni á landinu. Sem dæmi þá eru skjálftar við Torfajökul og Mýrdalsjökul einstaklega hægir, það er með ógreinilega byrjun og lága tíðni svo erfitt er að greina þá frá bakgrunnssuði. Meiri möguleikar eru til þess með nýja kerfinu,“ tilgreinir Kristín og að síðustu: Vöktun góð með nýjustu tækni „Almennt sagt stendur íslenskt jarðvísindafólk sig vel á alþjóðavísu. Í akademíunni sést þetta á því að við birtum reglulega greinar í virtum tímaritum. En sem betur fer eru aðrir mælikvarðar að verða sýnilegri, til dæmis hversu vel vöktunin hefur gengið og hversu öflug við erum að nýta okkur nýjustu tækni í eftirlitskerfi með náttúrunni.“ Jarðskjálftar eru yfirleitt forboði eldgosa, eins og þeirra tólf sem hafa orðið á Reykjanesskaga frá því umbrot þar hófust í mars 2021. mbl.is/Eggert Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Ótrúlega skemmtilegt tækifæri Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Krefjast aðgerða vegna nýs kerfis Schengen-ríkja ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Ók í hláturgasvímu á ólétta konu Mun fleiri taka hlutdeildarlán „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Andlát: Valgarð Már Jakobsson Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Ótrúlega skemmtilegt tækifæri Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Krefjast aðgerða vegna nýs kerfis Schengen-ríkja ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Trump virðist hafa vitað meira Sindri mættur fyrir dóm Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article