Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Sprengingar og skotríð dynja á höfuðborg Malí

The article describes a coordinated, multi-city armed assault by jihadist and insurgent groups in Mali, including attacks on military bases and critical infrastructure in Bamako, Gao, Kidal, and Sevare. The attacks, potentially the largest by jihadists in years, have led to widespread clashes, road closures, and the temporary shutdown of Bamako's international airport. The situation underscores the severe and persistent security threat in Mali, prompting international advisories for citizens to shelter in place and avoid travel.
Read Full Article →

Sprengingar og skothríð hafa dunið á Bamako, höfuðborg Malí í dag, þar sem vígahópar hafa hrint af stað að því er virðist samhæfðum árásum víða um landið. Her landsins segir átök enn standa yfir. Þá vinna varnar- og öryggissveitir við að ná stjórn á ástandinu. Vitni hafa greint frá hörðum átökum, meðal annars við herstöðina Kati í grennd við höfuðborgina. Þar hafa þyrlur sést á lofti og vegum hefur verið lokað. Tilkynningar um árásir hafa einnig borist í borgunum Gao og Kidal í norðurhluta landsins og í borginni Sevare sem er staðsett fyrir miðju þess. Að mati sérfræðinga gæti árásin reynst sú stærsta af hálfu jíhadista í Malí svo árum skiptir. Herforingjastjórn komst til valda árið 2020 Bandaríska sendiráðið í Malí hefur hvatt borgara til að halda sig innandyra og bresk stjórnvöld hafa mælt gegn öllum ferðum til landsins. Þá er alþjóðaflugvöllurinn í Bamako sagður lokaður tímabundið. Óstaðfestar upplýsingar AFP-fréttaveitunnar benda til þess að jihadistahópurinn Jama-at Nusrat al-Islam wal-Muslimin, sem tengist al-Kaída, og uppreisnarhópar Trúarega kunni að standa að baki árásunum. Malí hefur glímt við vaxandi óöryggi í meira en áratug. Landinu er stjórnað af herforingjastjórn sem komst til valda í valdaráni árið 2020 og hefur heitið því að bæta öryggi. Stór svæði landsins eru enn utan stjórnvalda. Mahmoud Ali Youssouf, formaður Afríkusambandsins, hefur fordæmt árásirnar. Í yfirlýsingu varaði hann við þeirri hættu sem átökin sköpuðu fyrir almenna borgara og ítrekaði skuldbindingar sambandsins við stöðugleika og frið.

Share this article