- What: Two Hezbollah members reported killed in Israeli airstrikes in Beirut
- Impact: Reports of explosions and casualties in southern Beirut
Ísraelsher segir tvo háttsetta liðsmenn Hezbollah liggja í valnum eftir tvær aðskildar loftárásir á líbönsku höfuðborgina Beirút. Íbúðahverfi í sunnanverðri Beirútborg.EPA / WAEL HAMZEH Herinn hefur ekki enn nafngreint mennina. Fréttamenn AFP og Reuters greina frá þungum árásum á Beirút og háværum sprengjugný. Sjúkrabílar eru sagðir á þönum um borgina. Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir minnst sjö hafa verið drepna og á þriðja tug særðan í loftárásum Ísraels á úthverfi í Beirút sunnanverðri í kvöld.