Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Skjálfti upp á 3,2 í Bárðarbungu Brynjólfur Þór Guðmundsson Jarðskjálfti sem var 3,2 að stærð varð í Bárðarbungu klukkan 14:34 í dag. Nokkuð algengt er að jörð skjálfi í Bárðarbungu. Síðasti skjálfti yfir 3 að stærð varð fyrir tæplega fjórum vikum, 31. mars. Hann var öllu stærri en skjálftinn í dag, 3,8 að stærð. Bárðarbunga. Safnmynd. RÚV / Einar Rafnsson Fyrir 6 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mikilvægur sigur Arsenal sem er aftur á toppnum Arsenal tók á móti Newcastle í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Arsenal vann þar mikilvægan 1-0 sigur því liðið er sem stendur í harðri baráttu við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum Brynjólfur Þór Guðmundsson Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, segir að ríkisstjórn sín sé staðráðin í að halda áfram að reyna að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna. Í dag var ljóst að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundahöldum með erindrekum ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Írans. Utanríkisráðherra Írans hélt aftur heim eftir fund með pakistönskum ráðamönnum og Bandaríkjaforseti hætti við að senda sína erindreka til Pakistans. Sharif sagðist í dag hafa rætt við Masoud Pezeshkian, forseta Írans, og ítrekað vilja sinn til að liðka fyrir friði. Shehbaz Sharif tók á móti Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, í dag. AP/Pakistan Prime Minister Office / Uncredited Fyrir 18 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Orban hættir á þingi Viktor Orban ætlar að hætta á þingi og einbeita sér að því að endurskipuleggja stjórnmálaflokk sinn, Fidesz, á landsvísu. Orban og Fidesz-flokkurinn töpuðu stórt í þingkosningunum í Ungverjalandi fyrr í mánuðinum. Fyrir 20 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti City fer í úrslit bikarsins Anna Sigrún Davíðsdóttir Manchester City og Southampton mættust í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Það var djúpt á mörkum í leiknum en þegar þau komu þá komu þau á færibandi. Finn Azaz kom Southampton yfir á 79. mínútu. Það kveikti í City og Jérémy Doku jafnaði metinn þremur mínútum síðar, 1-1. Fimm mínútum eftir það átti hann svo sendingu á Nico González sem kom City yfir, tryggði þeim 2-1 sigur og sæti í úrslitaleiknum. Chelsea og Leeds eigast við í hinum undanúrslitaleiknum sem fer fram á morgun. Nico Gonzalez og Matheus Nunes fagna sigurmarkinu. EPA / VINCE MIGNOTT Fyrir 26 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Eyjakonur með góða innkomu í úrvalsdeild Þrír leikir voru á dagskrá Bestu deildar kvenna í dag. Báðir nýliðar deildarinnar mættu til leiks og Eyjakonur byrjuðu vel með sigri í miklum markaleik á móti 4-3. Valskonur höfðu betur gegn hinum nýliðum deildarinnar í Grindavík/Njarðvík, 2-1. Fyrir 40 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt jafnt hjá Glódísi og félögum í einvíginu við Barcelona Bayern München og Barcelona mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Bayern. Liðin skildu jöfn 1-1 og því er úrslitaleikur í vændum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Heillaðist af landinu og lærði íslensku upp á eigin spýtur Ungur maður frá Bandaríkjunum kenndi sér íslensku sjálfur með því að lesa íslenska fréttamiðla, Wikipedia og Vísindavefinn. Hann hefur þróað smáforrit sem tengir tungumálaáhugafólk saman. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Sara Sif læsti markinu og oddaleikur í vændum Anna Sigrún Davíðsdóttir Haukar tóku á móti ÍBV í fjórða leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta. Haukar unnu 26-23 og því fer viðureignin í oddaleik sem fram fer í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Mikið jafnræði var meðal liðanna en Haukar leiddu með einu í hálfleik, 11-10. Haukakonur unnu upp forskot um miðjan síðari hálfleik og þrjú mörk skildu liðin að þegar stundarfjórðungur var eftir, 19-16. Hafnfirðingar héldu þeim mun allt til loka og fögnuðu loks þriggja marka sigri, 26-23. Sara Sif Helgadóttir gerði gæfumuninn í dag þvi varði 21 skot í marki Hauka og endaði með 48% markvörslu. Sara Sif átti stórleik í dag. RÚV / Mummi Lú Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Meiri andstaða við borgarlínu fjarri miðborginni Marktækur munur er á stuðningi við borgarlínuna eftir hverfum í Reykjavík. Því lengra frá miðborginni, því meiri er andstaða íbúa samkvæmt nýrri rannsókn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Örkuðu yfir Öxi og krefjast samgöngubóta Stelpurnar í 10. bekk á Djúpavogi örkuðu yfir fjallveginn um Öxi í dag og kröfðust samgöngubóta til Egilsstaða. Þær ætla í Menntaskólann á Egilsstöðum næsta haust og líst illa á að keyra holóttann veginn þegar þær fá bílpróf. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Liverpool upp í fjórða Fimm leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta í dag. Fjórum er lokið og Liverpool er nú í fjórða sæti eftir sigur á Crystal Palace. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Sprengingar og skotríð dynja á höfuðborg Malí Átök hafa brotist út í Bamako, höfuðborg Malí. Talið er árásirnar séu þær umfangsmestu af hálfu vígahópa jíhadista í fjölda ára. Afríkusambandið hefur fordæmt árásirnar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Ekkert verður af fundahöldum Kushners og Witkoffs með Írönum Bandaríkjaforseti hætti í dag við að senda tvo erindreka sína til Pakistans til viðræðna við Írana. Utanríkisráðherra Írans ræddi við pakistanska ráðamenn í dag og hélt svo aftur til Írans. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Kanna fjárstuðning við Matthildi Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað frekari upplýsinga frá Matthildarsamtökunum áður en ákvörðun verður tekin um fjárframlög. Samtökin sem vinna að skaðaminnkun gætu þurft að hætta starfsemi vegna skorts á fjármagni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjaradeilu flugmanna og Icelandair vísað til ríkissáttasemjara Brynjólfur Þór Guðmundsson Kjaradeila flugmanna hjá Icelandair er komin á borð ríkissáttasemjara. Samtök atvinnulífsins ákváðu fyrir hönd flugfélagsins að vísa samningaviðræðum til ríkissáttasemjara. Samningur SA og Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomulag um nýjan samning. Eftir að málinu var vísað áfram er ljóst að næstu skref verða á forræði ríkissáttasemjara sem stýrir viðræðunum hér eftir. Þota Icelandair. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Þrjú af fjórum framboðum í Borgarbyggð alfarið á móti uppbyggingu vindorkuvers Þrír af fjórum flokkum sem bjóða fram í Borgarbyggð eru á móti uppbyggingu vindorkuvers í sveitarfélaginu. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Lyftingar Erla sló persónulegt met á EM Þórbergur Ernir Hlynsson og Erla Ágústsdóttir kepptu á EM í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu. Erla bætti þá sitt persónulega met í samanlagðri þyngd um tvö kíló. Þórbergur gerði vel og endar að líkindum í 21. sæti. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Djammvænn glaðningur leyndist í afmælisköku Vikunnar Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir færði Gísla Marteini Baldurssyni veglega köku í tilefni þrjúhundruðasta þáttar Vikunnar. Kakan var þó ekki öll þar sem hún var séð. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Kjörsókn dræm í fyrstu kosningunum síðan stríðið á Gaza hófst Palestínumenn á Vesturbakkanum og hluta Gaza ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórnar. Kjörsókn hefur verið dræm í morgun en rúmlega milljón er á kjörskrá. Þetta eru fyrstu kosningarnar á Gaza síðan 2006. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Sviðsetja rútuslys á Bakkaflugvelli Hópslysaæfing fer fram á Bakkaflugvelli í Landeyjum í dag. Þar er umfangsmikið rútuslys sett á svið. Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir æfingar sem þessa afar mikilvægar. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar fundi í dag Alls er óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar hittist til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Utanríkisráðherra Írans fundaði með yfirmanni pakistanska hersins í morgun. Átta vikur eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum í Kópavogi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Meirihluti þeirra og Framsóknar myndi falla. Samfylkingin er með þrefalt meira fylgi en í síðustu kosningum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lögbrot að selja hunang með stinningarlyfjum að mati forstjóra Lyfjastofnunar Fólk stofnar heilsu sinni í hættu með því að kaupa ólögleg lyf á netinu, segir forstjóri Lyfjastofnunar. Hún segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fjórðungi færri fá fjárhagsaðstoð en áður 60 prósent þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg eru atvinnulaus. Tveir af hverjum þremur sem þiggja fjárhagsaðstoð eru erlendir ríkisborgarar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vill skilgreina siglingaleiðina til Vestmannaeyja sem „þjóðferjuleið“ Þingmaður Framsóknar óskar eftir því að innviðaráðherra geri grein fyrir aðgerðum næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Vilja vernda viðkvæmar strendur fyrir ágangi ferðamanna Grísk stjórnvöld hafa uppfært lista yfir þau strandsvæði sem ber að halda í sínu náttúrulega ástandi í friði fyrir sívaxandi ágangi ferðamanna. Sérstaklega er horft til svæða með fagurfræðilegt eða vistfræðilegt gildi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Erkibiskupinn leyfir kjöt á grillið á föstudaginn Formlegt upphaf grilltímabilsins í Póllandi fellur á föstudag þetta árið. Erkibiskupinn í Varsjá ákvað að veita undanþágu frá banni við kjötneyslu svo kaþólikkar þyrftu ekki að fara á mis við tímamótin. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Engin viðmið eða skilyrði