Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Enn skelf­ur jörð á Reykja­nes­hrygg og í Bárð­ar­bungu Brynjólfur Þór Guðmundsson Jörð hélt áfram að skjálfa á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu í nótt. Þar hófst skjálftahrina á laugardag. Stærsti skjálftinn á Reykjaneshrygg í nótt var 3,0 að stærð, 1,8 kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi. Þar urðu einnig nokkrir skjálftar um 2,0 eða stærri í gær og í nótt. Nokkrir skjálftar um og yfir tveimur hafa orðið í Bárðarbungu síðasta sólarhringinn. Jarðskjálftar eru algengir á báðum þessum stöðum. Rauðir blettir tákna nýjustu skjálftana á korti Veðurstofunnar. Veðurstofan Fyrir 56 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Tveir hand­tekn­ir vegna al­var­legr­ar lík­ams­árás­ar Brynjólfur Þór Guðmundsson Maður varð fyrir stórfelldri líkamsárás á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu. Sá sem fyrir árásinni varð er ekki í lífshættu. Þetta kemur fram í samantekt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tíðindi kvöldsins og næturinnar. Tveir voru handteknir vegna árásarinnar og vinnur lögregla áfram að rannsókninni. Alls gistu fimm fangaklefa lögreglu í morgun eftir atburði gærkvöldsins og næturinnar. Einn var handtekinn eftir að hafa verið staðinn að akstri undir áhrifum fíkniefna og áfengis með fíkniefni í bílnum. Ölvaður ökumaður var fluttur í fangaklefa eftir árekstur og blóðsýnatöku. Lögregla að störfum. Safnmynd. RÚV Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvass­viðri eða storm­ur í kvöld og nótt Rigning og allnokkur vindur einkenna veðrið í dag. Fremur svalt verður í veðri þegar líður á vikuna. Hvassviðri eða stormur verður í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu í kvöld og nótt. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Varð ekki hrædd­ur þegar hann heyrði skot­hvell­ina Bandaríkjaforseti segist ekki vita hvort hann hafi verið skotmark árásarmannsins sem skaut úr byssu á kvöldverði blaðamanna Hvíta hússins í Washington í fyrrinótt. Trump blæs á allar samsæriskenningar um að árásin hafi verið sviðsett. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Ís­lands­meist­ar­inn flétt­ar saman fim­leika og fast­eigna­sölu Fimleikamaðurinn Ágúst Ingi Davíðsson hefur í nægu að snúast. Samhliða því að sanka að sér verðlaunum í fimleikum selur hann fasteignir. Ágúst segir starfið henta afreksíþróttamennsku vel. Hann segist eiga nóg inni og stefnir á Ólympíuleika. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu 10 særð­ust í árásum í Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Maður virðir fyrir sér húsarústir eftir árásir rússneska hersins á Odesu 24. apríl 2026. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / IGOR MASLOV Að minnsta kosti 10 eru særðir eftir drónaárásir rússneska hersins á úkraínsku hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrstu sprengingarnar áttu sér stað um klukkan 01:30 að staðartíma, samkvæmt úkraínska fréttamiðlinum Kyiv Independent. Haft er eftir héraðsstjóra Odesu, Oleh Kiper, að árásirnar hefðu beinst að fjölbýlishúsi og hóteli í borginni. Rússneski herinn hefur ítrekað gert árásir á borgina síðan innrásin hófst í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Litáen Mikil mót­mæli í Viln­i­us gegn frum­varpi um breyt­ing­ar á lögum um rík­is­út­varp­ið LRT Frumvarp um breytingar á lögum um LRT hefur verið til umræðu í litáíska þinginu undanfarið. Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt bæði af fjölmiðlafólki og almenningi í Litáen en þetta voru sjöttu mótmælin sem skipulögð voru gegn frumvarpinu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Franska strand­gæsl­an bjarg­aði 119 flótta­mönn­um Brynja Dögg Friðriksdóttir Franska strandgæslan og bátur flóttafólks á Ermasundinu, 27. september 2025. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / FADEL DAWOD Franska strandgæslan bjargaði 119 flóttamönnum á Ermasundi á laugardaginn. Fólkið var að reyna að komast yfir sundið til Bretlands á litlum bátum. Einn flóttamaður var meðvitundarlaus og var hann fluttur með þyrlu á spítala í Boulogne á norðurströnd Frakklands. Frakkar og Bretar skrifuðu undir þriggja ára samning á fimmtudaginn um að stöðva flóttamenn sem reyna að sigla yfir Ermasundið. Bresk stjórnvöld ætla að auka greiðslur til franskra stjórnvalda og taka þátt í að fjármagna aðgerðirnar. Á síðasta ári reyndu að minnsta kosti 29 flóttamenn að sigla yfir Ermarsundið. Á þessu ári hafa sex látist við að reyna að fara yfir Ermarsundið. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tjad 42 drepn­ir í átökum um vatns­brunn Brynja Dögg Friðriksdóttir Flóttamenn frá Súdan bíða eftir því að sækja vatn í Farchana-flóttamannabúðunum í Austur-Tjad í apríl 2024. Mikill vatnsskortur er á þessu svæði, sem bitnar bæði á íbúum þess og flóttamönnum sem flúið hafa stríðið í Súdan yfir til Tjad. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / Stringer Að minnsta kosti 42 voru drepnir í átökum milli þjóðarbrota í Austur-Tjad í gær. Fréttaveitan AFP hefur eftir ónafngreindum embættismanni í ríkisstjórn landsins að átök hefðu brotist út milli hópa fólks í Wadi Fira-héraðinu vegna vatnsbrunns. Átök hafa ítrekað brotist út milli bænda og hirðingja í Austur-Tjad. Spennan hefur aukist á þessu svæði eftir að mikill fjöldi flóttamanna flúði stríðsátök í Súdan yfir til Tjad. Yfir 1.000 manns hafa verið drepnir og um 2.000 hafa slasast í átökum um ræktað land og beitilönd á árunum 2021-2024, samkvæmt frjálsu félagasamtökunum International Crisis Group. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Araghchi fundar með Pútín í dag Utanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi, fundar með Rússlandsforseta í Pétursborg í dag. Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Stjórnvöld í Óman og Pakistan reyna að miðla málum milli þjóðanna. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jarð­skjálfti á Hokkaido-eyju Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálftar eru tíðir í Japan. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / JIJI PRESS Skjálfti að stærðinni 6,1 varð á japönsku eyjunni Hokkaido í kvöld eða klukkan 05:30 að morgni í Japan. Ekki hafa borist fregnir af því hvort fólk hafi slasast en skemmdir af völdum skjálftans eru sagðar minniháttar. Skjálftinn varð 18 kílómetra vestur af bænum Sarabetsu á Hokkaido-eyju á um 80 kílómetra dýpi samkvæmt japönsku veðurstofunni og Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna skjálftans. Jarðskjálftar eru tíðir í Japan og að jafnaði eru allt að 1.500 jarðskjálftar á ári í Japan, sem er um 18% allra jarðskjálfta í heiminum. 26. apríl 2026 kl. 21:30ÍÞRÓTTIR Bardagaíþróttir Ingi­björg og Guð­mund­ur Flóki tóku brons Anna Sigrún Davíðsdóttir Ingibjörg Erla Grétarsson og Guðmundur Flóki Sigurjónsson kepptu á British open, alþjóðlegu móti í ólympísku taekwondo. Bæði tóku þau brons með heim. Ingibjörg keppir í -62 kílóa flokki. Ingibjörg sigraði tvo bardaga 2-0 en laut svo í lægra haldi fyrir sigurvegaranum í flokkum. Ingibjörg endaði í þriðja sæti af 21. Ingibjörg Erla á æfingu. RÚV Guðmundur Flóki keppti í -80 kílóa flokki ásamt 13 öðrum. Hann vann einn bardaga öruggt en tapaði þeim næsta og endaði þriðji. 26. apríl 2026 kl. 21:23ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína „Ch­er­no­byl var risa­stór rík­is­styrkt lygi“ Fjörutíu ár eru liðin frá versta kjarnorkuslysi sögunnar þegar kjarnaofn í Chernobyl-kjarnorkuverinu sprakk. Maður sem hefur ljósmyndað afleiðingar slyssins frá nánast fyrstu stundu segir fólkið sem hann hitti í gegnum árin eftirminnilegast. 26. apríl 2026 kl. 21:08ÍÞRÓTTIR Körfubolti Vals­menn jafna ein­víg­ið við Grinda­vík Anna Sigrún Davíðsdóttir Valur og Grindavík mættust öðru sinni í æsispennandi leik í undanúrsitum úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta og að honum loknum var allt jafnt 19-19. Sömu sögu var að segja í öðrum leikhluta og í leikhléi var staðan 41-41. Kári Jónsson kom Val í 68-57 snemma í fjórða leikhluta. Þá hafði aldrei munað eins miklu á liðunum, enda leikurinn afar jafn. Þá var bitið farið úr sóknarleik Grindavíkur og Valsmenn héldu út og sigldu sigri í hús, 79-72. Kári Jónsson og Callum Lawson voru stigahæstir Valsmanna hvor með 16 stig. Staðan í einvíginu er 1-1. Liðin mætast aftur á fimmtudag í Grindavík. Kári Jónsson skoraði 16 stig í kvöld, öll í seinni hálfleik. Mummi Lú 26. apríl 2026 kl. 21:01INNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Svart­þrasta­móð­ir sinnir ung­við­inu í beinni Hægt er að fylgjast með nýbakaðri svartþrastamóður sinna fjórum ungum sínum í beinni útsendingu á YouTube. Hreiður hennar uppgötvaðist þann 11. apríl og síðan hefur hún haft í nógu að snúast. 26. apríl 2026 kl. 20:39INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkvi­liðs­stöðv­ar á Laug­ar­vatni Mikil ánægja ríkir með nýja slökkviliðsstöð sem opnað hefur á Laugarvatni. Þrettán slökkviliðsmenn eru skráðir í slökkviliðið. Starfsemin heyrir undir Brunavarnir Árnessýslu. 26. apríl 2026 kl. 20:25ÍÞRÓTTIR Fótbolti Ný­lið­arn­ir sóttu fyrsta sig­ur­inn norður Anna Sigrún Davíðsdóttir Keflavík heimsótti KA í fyrsta leik fjórðu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Nýliðar Keflavíkur unnu sinn fyrsta sigur í deildinni. Oliver Heiðarsson kom KA-mönnum yfir á 31. mínútu þegar hann sólaði sig fram hjá markverði og skaut boltanum í netið. Rúmum tíu mínútum síðar kom jöfnunarmark frá Davíð Helga Aronssyni, 1-1. Sigurmark Keflavíkur skoraði Stefn Ljubicic á 60. mínútu og færði Keflavík um leið fyrsta sigurinn á tímabilinu. Keflavík er með fjögur stig eftir jafnmargar umferðir og KA með eitt. Umferðin klárast svo á morgun. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur. Mummi Lú 26. apríl 2026 kl. 20:20INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Mað­ur­inn sem fannst við Háa­foss er látinn Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld er látinn. 26. apríl 2026 kl. 19:57INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Plokk­ur­um blöskr­aði magn af nik­ót­ín­púð­um sem komu í pokana þeirra Hundruð plokkara á öllum aldri tíndu rusl í dag á Stóra plokkdeginum. Rótarýhreyfingin á Íslandi stendur að skipulagningu dagsins. 26. apríl 2026 kl. 19:18INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Mað

Share this article