Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar 30 skjálftar á Reykjaneshrygg Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Ríflega þrjátíu skjálftar hafa orðið á Reykjaneshrygg síðan í hádeginu, þar af um helmingur milli 2 og 3 að stærð. Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að skjálftahrinur séu mjög algengar á þessu svæði. Kort / Google Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Mótmæltu lengri þingfundi vegna veisluhalda með bændum Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru óhressir með að óskað hafi verið eftir lengri þingfundi í dag þar sem það skarast á við veisluhöld í tengslum við Búnaðarþing. Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Okkar borg birtir framboðslista Okkar borg hefur birt framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningar í maí. Sigfús Aðalsteinsson leiðir listann. Fyrir 16 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Spóla til baka í íslensku rappsögunni Benni B-Ruff stendur fyrir ferðalagi um íslenskt hip-hop ásamt Kjartani Trauner og Gísla Galdri á þriðjudaginn undir merkjum REW. Fyrir 31 mínútuMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Evrópusambandið, fussum svei! Dúettinn Plató berst gegn Evrópusambandsaðild með slagorðinu: Látum ekki Plató okkur inn í ESB! Hann mætti í Vikuna með Gísla Marteini. Fyrir 35 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Kannast ekki við viðræður við Bandaríkin um endalok átaka Íranska utanríkisráðuneytið segir orð Bandaríkjaforseta um friðarviðræður aðeins bragð til að lækka orkuverð. Bandaríkjaforseti segist vongóður um að hægt verði að semja um endalok átaka í vikunni. Fyrir 37 mínútumÍÞRÓTTIR Íþróttir Í kvöld: Úrslit á Íslandsmótinu í keilu Úrslit í Íslandsmótinu í keilu fara fram í kvöld. Sýnt verður beint frá úrslitum klukkan 19:15 á RÚV 2. Þar keppa þrír karlar og þrjár konur um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrir 45 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Herbert Guðmundsson ásamt kór Keflavíkurkirkju Herbert Guðmundsson ásamt kór Keflavíkurkirkju kom út í febrúar í fyrra. Á plötunni öðlast þekktustu lög Herberts Guðmundssonar nýtt líf í kórútsetningum Arnórs Vilbergssonar. Fyrir 53 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður 30 bílar fastir nærri Vík í Mýrdal Tugir ökumanna hafa lent í vandræðum á vegum nærri Vík í Mýrdal vegna hríðarveðurs og lélegs skyggnis. Björgunarsveitin Víkverji vinnur að því að fylgja bílunum til Víkur. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Að vera barn í heimi sem er hannaður fyrir fullorðna Sjónarhorn leika lykilhlutverk í bókinni Ég bý í Risalandi eftir Birnu Daníelsdóttur. Hún veltir fyrir sér hvort heimurinn henti börnum eða sé alfarið hannaður með fullorðna í huga. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Drengur stakk mann í strætó Þorgerður Anna Gunnarsdóttir RÚV / Ragnar Visage Drengur beitti hníf í átökum í strætisvagni á höfuðborgarsvæðinu í gær. Sá sem varð fyrir árásinni, fullorðinn maður, hlaut minniháttar áverka. Þetta staðfestir Eiríkur Valberg hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir málið hafa verið unnið í samstarfi við barnavernd og að rannsókn þess sé á frumstigi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Stórhríð sunnan- og austanlands í kvöld Gular viðvaranir eru í gildi um nær land allt vegna storms með snjókomu og skafrenningi. Fjölda vega gæti lokað með skömmum fyrirvara. Veðurfræðingur hjá Vegagerðinni segir mikla lausamjöll hafa mikil áhrif á skyggni á vegum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Grænland Grænland enn á dagskrá vestra Yfirmaður Norðurherstjórnar Bandaríkjahers sagði fyrir þingnefnd í liðinni viku að þörf væri á aukinni viðveru á Grænlandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Atvinnuhorfur að versna í ferðaþjónustu og iðnaði Fyrirtæki í ferðaþjónustu og iðnaði halda að sér höndum vegna efnahagsástandsins. Sérfræðingur í vinnumarkaðshagfræði bendir á að atvinnuleysi sé ekki mikið hér á landi í alþjóðlegu samhengi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hættu rannsókn á meintu kynferðisbroti á leikskóla á Flúðum Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar í byrjun árs meint kynferðisbrot gegn barni á leikskóla á Suðurlandi. Rannsókn málsins hefur verið hætt og enginn er með réttarstöðu sakbornings. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Hittust tæpum 50 árum síðar á sama stað Fjórir ungir Hríseyingar ræddu lífið í eynni í Kastljósi árið 1978. Núna, 48 árum síðar, hitti Landinn sömu fjóra menn. Ljóst er að margt hefur breyst á þessum árum en vinskapurinn hefur haldist. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Allt innra net lögreglunnar óvirkt í hálfan sólarhring Fjarskiptamiðstöð og allt innra net lögreglunnar var óvirkt í um hálfan sólarhring um helgina vegna bilunar í kælibúnaði í tölvusal. Lögreglumenn þurftu að notast við TETRA-talstöðvar á meðan kerfið lá niðri. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Loka verslun Next á Íslandi Erla María Markúsdóttir Verslun Next í Kringlunni verður lokað 4. apríl. rúv / Hulda Geirsdóttir Verslun Next í Kringlunni verður lokað í næstu viku. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Next á Íslandi. Þar segir að allar vörur eru á 50 prósenta afslætti en ekki er hægt skila þeim. Next er í stóru verslunarrými á 2. hæð í Kringlunni, við hliðina á H&M. Next á Íslandi lokar 4. apríl. Skjáskot / Facebook Next hefur verið starfrækt á Íslandi um árabil. Stofnendur eru Sverrir Berg Steinarsson og Ragnheiður Anna Jónsdóttir. Verslunin lokar laugardaginn 4. apríl. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla átalin fyrir að vanrækja hlutverk sitt við rannsókn á nauðgun Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu segir embættið hafa látið hjá líða að sinna lögmætu hlutverki sínu við upphaf rannsóknar á nauðgun. Ummæli rannsóknarlögreglumanns, sem bað sakborning afsökunar í skýrslutöku, eru talin óheppileg. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía Kærleikur, umhyggja og sköpunargáfa á alþjóðlega downs-deginum Fyrirsætur með downs-heilkenni komu fram á tískusýningu í Búkarest í Ungverjalandi í tilefni af alþjóðlega downs-deginum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikjahönnuður oddviti Sósíalista í Kópavogi Sósíalistafélag Kópavogs hefur tilkynnt þrjú efstu sæti framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frestar árásum á orkuinnviði eftir gagnlegar viðræður við Írana Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk og bandarísk stjórnvöld hafa á síðustu tveimur dögum rætt um endalok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn útskrifaður og annar á batavegi eftir sprengingu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Frá vettvangi sprengingarinnar. RÚV / Ragnar Visage Einn þeirra sem slösuðust í sprengingu í Fóðurblöndunni á föstudagsmorgun er útskrifaður af Landspítalanum og annar er á batavegi. Þetta segir Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi í samtali við fréttastofu. Einn lést í sprengingunni. Guðmundur segir orsök sprengingarinnar til rannsóknar og hún muni taka nokkurn tíma. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ætla að girða fyrir Persaflóa með tundurduflum ef Trump fylgir hótunum sínum eftir Íranar og Bandaríkjamenn halda áfram að takast á um Hormússund. Um helgina hótaði Bandaríkjaforseti árásum á írönsk orkuverk ef sundið yrði ekki opnað innan tveggja sólarhringa. Íranar hóta því að loka Persaflóa ef til árasa kemur. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Hyggjast nota gróður til að draga vatnið ofan í jarðveginn Dagur vatnsins var haldinn hátíðlegur í samkomuhúsi Grundarfjarðar í gær. Fjölbreytt fræðsla um votlendi og umhverfismál var á boðstólnum ásamt skemmtun fyrir börnin. Verkefnið „blágrænar ofanvatnslausnir í þéttbýlið“ var hvatinn að hátíðinni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær N1 og Landsbankinn bætast í hluthafahóp Eyjaganga Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Markmið Eyjaganga er að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar. RÚV / Ólöf Ragnarsdóttir N1 og Landsbankinn hafa bæst í hóp hluthafa í Eyjagöngum ehf. Í tilkynningu segir að verkefnið hafi tekið stórt skref fram á við með innkomunni. Íslandsbanki var þegar hluthafi í félaginu og í tilkynningu segir að aðkoma bankanna tveggja sé sérstaklega jákvæð, þar sem þeir hafi verið lykilaðilar í fjármögnun Hvalfjarðarganga á sínum tíma. Þá marki aðkoma N1 tímamót þar sem fyrirtækið sjái mikil tækifæri í uppbyggingu á Suðurlandi. Til stendur að hefja rannsóknarboranir til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli Vestmannaeyja og meginlandsins í næsta mánuði. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hjörtur inn í landsliðshópinn Hjörtur Hermannsson hefur verið valinn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Hann kemur í stað Daníels Leó Grétarssonar sem er meiddur. Fram undan eru æfingaleikir gegn Haítí og Kanada. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Náttúra Fegursti staður á jarðarkringlunni Í Náttúran kallar er rætt við Víði Hólm Guðbjartsson sem býr í Bakkadal í Arnarfirði á Vestfjörðum, en þar er að finna fegursta stað á jarðarkringlunni að hans mati. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ríkisútvarpið Rás 1 og Rás 2 úti í Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Rás 1 og Rás 2 eru úti í Ísafjarðardjúpi, sunnan Ögurness, og á Steingrímsfjarðarheiði vegna bilunar á svæðinu. Sendastaðir RÚV sem eru niðri eru Bæir, Nauteyri og Hátungur. Ekkert útvarp næst á þessu svæði. Reynt verður að koma útsendingu í lag á miðvikudag þegar veður leyfir. Sendastaðirnir sem eru úti. RÚV Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Réttarhöld um stærsta lestarslys í sögu Grikklands 36 eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á versta lestarslysi í sögu Grikklands. 57 fórust í árekstri flutningalestar og farþegalestar fyrir þremur árum. Réttarhöld hefjast í dag og eru yfir 350 vitni væntanleg fyrir dóminn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögr