Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hátt í hundrað skjálftar á Reykjaneshrygg – Stærsti skjálftinn í hálft ár

Read Full Article →

Um 120 jarðskjálftar hafa mælst í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg síðan í hádeginu. Stærsti skjálftinn reið yfir klukkan 16:30 og mældist 4,4 að stærð. Hann er sá stærsti sem hefur mælst á þessum slóðum síðan í september, eða í hálft ár. Skjálftahrina hófst um 25 kílómetra suðvestur af Eldey á Reykjaneshrygg um hádegi í dag. Fjórir skjálftar hafa mælst yfir 4 að stærð í dag en margir skjálftanna eru á bilinu 1 og 2 að stærð. Ekkert bendir til þess að hrinan tengist eldvirkni á Reykjanesskaga. „Við erum ekki að sjá neinn gosóróa,“ segir Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. „Auðvitað geta orðið eldgos þarna en það er ekkert sem bendir til þess núna.“ Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni bárust tilkynningar um að skjálftinn hefði fundist í byggð. Að auki hafa þrír skjálftar mælst yfir 3 að stærð. Jarðskjálftar eru algengir í kringum Reykjaneshrygg en álíka röð skjálfta varð 8. febrúar. Sólahringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram með. Fréttin var uppfærð eftir að uppfærðar upplýsingar bárust um stærð skjálfta.

Share this article