Fjöldi skjálfta hefur mælst á Reykjaneshrygg á síðasta sólarhring. Jarþrúður Ósk Jóhannsdóttir náttúruvársérfræðingur segir jarðskjálftahrinurnar alla jafna vera tilkomnar vegna flekahreyfinga og að þær séu nokkuð algengar á Reykjaneshrygg. „Það hafa mælst svona hátt í 280 skjálftar síðan á hádegi í gær. Það hafa mælst fjórir skjálftar sem eru yfir fjórir að stærð og einnig hafa mælst um 16 skjálftar sem eru yfir þrír að stærð. Stærsti skjálftinn mældist klukkan hálf fimm í gær. Hann var 4,4 að stærð,“ segir Jarþrúður. Að hennar mati er ekki ástæða til að telja að skjálftarnir bendi til eldgoss þar sem engin merki hafa fundist um gosóróa. „Ef það væri líklegra að það væri gos myndum við sjá gosóróa og við erum ekki að sjá það núna. Við erum ekki að sjá neitt nema þessa jarðskjálfta en það er svona týpískt fyrir flekahreyfingar.“ „Það hefur dregið svolítið úr virkninni, svona frá því klukkan fjögur eða fimm í morgun, þannig að hún virðist vera að fjara hægt og rólega út.“