Terra umhverfisþjónusta hagnaðist um 469 milljónir króna í fyrra, samanborið við 517 milljóna hagnað árið áður. Velta samstæðunnar nam tæplega 10,3 milljörðum króna, sem er aukning um 10% frá fyrra ári þegar veltan nam tæplega 9,4 milljörðum. Meðalfjöldi stöðugilda var 226, samanborið við 221 árið áður. Terra Einingar, dótturfélag Terra umhverfisþjónustu, gekk á árinu frá kaupum á 100% eignarhlut í Tæki.is en samkvæmt upplýsingum í ársreikningi nam kaupverðið 935 milljónum króna. Undir samstæðu Terra umhverfisþjónustu falla einnig Öryggisgirðingar, sem Terra festi kaup á árið 2024 fyrir 582 milljónir. Hjá móðurfélaginu nam bókfært virði eignarhluta í dótturfélögum 1.913 milljónum króna. Eignir samstæðunnar í heild voru bókfærðar á 14.753 milljónir króna en eigið fé nam tæplega 4.571 milljón og var eiginfjárhlutfall því 31%. GÞ Holding, móðurfélag Terra umhverfisþjónustu, er í 65% eigu framtakssjóðsins SÍA III og 35% eigu fjárfestingafélagsins Barone I ehf. Valgeir Baldursson er framkvæmdastjóri. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .