Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jarðskjálfti á Hokkaido-eyju Brynja Dögg Friðriksdóttir Jarðskjálftar eru tíðir í Japan. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / JIJI PRESS Skjálfti að stærðinni 6,1 varð á japönsku eyjunni Hokkaido klukkan hálf tíu í kvöld eða hálf sex að morgni í Japan. Ekki hafa borist fregnir af því hvort einhver hafi slasast. Skjálftinn varð 18 kílómetra vestur af bænum Sarabetsu á Hokkaido-eyju á um 80 kílómetra dýpi. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun vegna skjálftans. Fréttin verður uppfærð. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Bardagaíþróttir Ingibjörg og Guðmundur Flóki tóku brons Anna Sigrún Davíðsdóttir Ingibjörg Erla Grétarsson og Guðmundur Flóki Sigurjónsson kepptu á British open, alþjóðlegu móti í ólympísku taekwondo. Bæði tóku þau brons með heim. Ingibjörg keppir í -62 kílóa flokki. Ingibjörg sigraði tvo bardaga 2-0 en laut svo í lægra haldi fyrir sigurvegaranum í flokkum. Ingibjörg endaði í þriðja sæti af 21. Ingibjörg Erla á æfingu. RÚV Guðmundur Flóki keppti í -80 kílóa flokki ásamt 13 öðrum. Hann vann einn bardaga öruggt en tapaði þeim næsta og endaði þriðji. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Úkraína „Chernobyl var risastór ríkisstyrkt lygi“ Fjörutíu ár eru liðin frá versta kjarnorkuslysi sögunnar þegar kjarnaofn í Chernobyl-kjarnorkuverinu sprakk. Maður sem hefur ljósmyndað afleiðingar slyssins frá nánast fyrstu stundu segir fólkið sem hann hitti í gegnum árin eftirminnilegast. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Valsmenn jafna einvígið við Grindavík Anna Sigrún Davíðsdóttir Valur og Grindavík mættust öðru sinni í æsispennandi leik í undanúrsitum úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Liðin skiptust á forystunni í fyrsta leikhluta og að honum loknum var allt jafnt 19-19. Sömu sögu var að segja í öðrum leikhluta og í leikhléi var staðan 41-41. Kári Jónsson kom Val í 68-57 snemma í fjórða leikhluta. Þá hafði aldrei munað eins miklu á liðunum, enda leikurinn afar jafn. Þá var bitið farið úr sóknarleik Grindavíkur og Valsmenn héldu út og sigldu sigri í hús, 79-72. Kári Jónsson og Callum Lawson voru stigahæstir Valsmanna hvor með 16 stig. Staðan í einvíginu er 1-1. Liðin mætast aftur á fimmtudag í Grindavík. Kári Jónsson skoraði 16 stig í kvöld, öll í seinni hálfleik. Mummi Lú Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Svartþrastamóðir sinnir ungviðinu í beinni Hægt er að fylgjast með nýbakaðri svartþrastamóður sinna fjórum ungum sínum í beinni útsendingu á YouTube. Hreiður hennar uppgötvaðist þann 11. apríl og síðan hefur hún haft í nógu að snúast. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Mikil ánægja með opnun nýrrar slökkviliðsstöðvar á Laugarvatni Mikil ánægja ríkir með nýja slökkviliðsstöð sem opnað hefur á Laugarvatni. Þrettán slökkviliðsmenn eru skráðir í slökkviliðið. Starfsemin heyrir undir Brunavarnir Árnessýslu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Nýliðarnir sóttu fyrsta sigurinn norður Anna Sigrún Davíðsdóttir Keflavík heimsótti KA í fyrsta leik fjórðu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í dag. Nýliðar Keflavíkur unnu sinn fyrsta sigur í deildinni. Oliver Heiðarsson kom KA-mönnum yfir á 31. mínútu þegar hann sólaði sig fram hjá markverði og skaut boltanum í netið. Rúmum tíu mínútum síðar kom jöfnunarmark frá Davíð Helga Aronssyni, 1-1. Sigurmark Keflavíkur skoraði Stefn Ljubicic á 60. mínútu og færði Keflavík um leið fyrsta sigurinn á tímabilinu. Keflavík er með fjögur stig eftir jafnmargar umferðir og KA með eitt. Umferðin klárast svo á morgun. Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur. Mummi Lú Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maðurinn sem fannst við Háafoss er látinn Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld er látinn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Plokkurum blöskraði magn af nikótínpúðum sem komu í pokana þeirra Hundruð plokkara á öllum aldri tíndu rusl í dag á Stóra plokkdeginum. Rótarýhreyfingin á Íslandi stendur að skipulagningu dagsins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maðurinn fundinn: Fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar Allt tiltækt viðbragðslið var kallað til rétt fyrir klukkan sjö í kvöld vegna manns í neyð niðri í gilinu við Háafoss. Maðurinn er fundinn og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Engar upplýsingar fást um líðan mannsins. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal vann fyrri leikinn í Meistaradeild Anna Sigrún Davíðsdóttir Arsenal tók á móti Lyon í fyrri leik liðanna í Meistaradeild kvenna í fótbolta í dag. Arsenal kom sér í góða stöðu með 2-1 sigri. Gestirnir byrjuðu betur og Jule Brand kom Lyon yfir á 19. mínútu. 1-0 stóð í hálfleik en á 61. mínútu skoraði Ingrid Engen sjálfsmark fyrir Lyon, 1-1. Það var svo Olivia Smith sem fann sigurmark Arsenal á 83. mínútu og 2-1 sigur enska liðsins niðurstaðan. Liðin mætast aftur í Frakklandi næsta laugardag. Olivia Smith þrumar boltanum í netið. EPA / DAVID CLIFF Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tilræðið við Bandaríkjaforseta kunni að kynda undir samsæriskenningum Dósent í stjórnmálafræði segir ólíklegt að tilræðið við Bandaríkjaforseta í nótt hafi langtímaáhrif á stöðu hans, vinsældir eða fylgi. Þó kunni það að kynda undir samsæriskenningum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Malí Varnarmálaráðherra Malí felldur í bílsprengju Varnarmálaráðherra Malí lést í dag ásamt þremur fjölskyldumeðlimum sínum af völdum bílsprengju sem var komið fyrir af vígahópum. Jihadistar og hópar uppreisnarmanna hófu víðtækar árásir í landinu í gær. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ánægja Reykvíkinga með þjónustu dalað á kjörtímabilinu Marktækt minni ánægja mælist með þjónustu sveitarfélagsins meðal Reykvíkinga samanborið við íbúa í öðrum sveitarfélögum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Danmörk Vitni að banaslysinu í Danmörku fá áfallahjálp Framkvæmdastjóri Fallhlífarmiðstöðvarinnar í Óðinsvéum segir samfélag fallhlífastökkvara í áfalli vegna banaslyssins í morgun. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Chelsea og Manchester City mætast í úrslitum bikarsins Anna Sigrún Davíðsdóttir Chelsea og Leeds mættust í seinni undanúrslitaleik ensku bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það var Enzo Fernandez sem gerði það fyrir Chelsea á 23. mínútu. 1-0 lokatölur og ljóst að það verða Chelsea og Manchester City sem mætast í úrslitaleik ensku bikarsins í maí. Manchester City tryggði sæti sitt í úrslitum í gær með sigri á Southampton, 2-1. Liðin mætast á Wembley laugardaginn 16. maí. Enzo Fernandez fagnar markinu. EPA / VINCE MIGNOTT Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Blak KA Íslandsmeistari í níunda sinn Þróttur Reykjavík og KA mættust í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í blaki í dag. Þróttur komst tvívegis yfir en norðanmenn náðu sigrinum og þar með Íslandsmeistaratitlinum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Badminton Íslandsmótið í badminton: Systraslagur og jöfnun á meti Íslandsmótið í badminton fór fram í gær. Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson sýndu yfirburði sína þegar þeir urðu Íslandmeistarar áttunda árið í röð í tvíliðaleik karla. Systur börðust í tvíliðaleik kvenna. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vopnahlé milli Ísraela og Líbana hangir á bláþræði Vopnahlé milli Ísraels og Líbanons stendur völtum fótum. Fulltrúar beggja hliða hafa sakað hver annan um að brjóta gegn því. Ísraelsher hefur gert loftárásir í suðurhluta Líbanons en Hezbollah segist hafa ráðist á ísraelskar hersveitir. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Náttúra Elsti kolkrabbi heims reyndist önnur tegund eftir allt saman Fjöldi tanna í fornum steingervingi sem var talinn elsti kolkrabbi heims komu upp um krabbann. Hið rétta er að steingervingurinn er snekkja, sem er dýr skylt skeldýrum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Meira þurfi til starfsins en að vera „góð kona“ Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir skilning skorta á störfum hjúkrunarfræðinga. Hún segir þá skoðun loða enn við stéttina að það eina sem þurfi til sé að vera góð kona. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Danmörk Íslenskur karlmaður lést í fallhlífarstökki 24 ára íslenskur karlmaður lést við fallhlífarstökk í Óðinsvéum í Danmörku rétt fyrir hádegi að dönskum staðartíma. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin sækir í sig veðrið á Akureyri Samfylkingin fengi þrjá bæjarfulltrúa á Akureyri samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem gerð var í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Flokkurinn fékk einn fulltrúa í síðustu kosningum. Ef könnunin gengi eftir væri núverandi meirihluti fallinn. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Grét þegar hún sá fyrstu tvo þættina af Hildi Finnsk/íslenski metsöluhöfundurinn Satu Rämö ræddi um sjónvarpsþættina Hildi og ferilinn sinn í Miðstöðinni. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Árásarmaðurinn vildi skjóta embættismenn í Bandaríkjastjórn Árásarmaðurinn sem grunaður er um að hafa hleypt af skotum á kvöldverði Samtaka blaðamanna Hvíta hússins sagðist hafa viljað skjóta embættismenn í ríkisstjórn Trumps. Hann var handtekinn og Bandaríkjaforseti var fluttur burt óhultur. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Klifur Agnes fyrst til að klifra í undanúrslitum Anna Sigrún Davíðsdóttir Agnes Matthildur Helgadóttir Folkmann keppti á Evrópubikarmóti í Litáen um helgina. Agnes gerði vel og komst í undanúrslit keppninnar. Nokkuð sem íslenskur klifrari hefur ekki gert áður. Agnes endaði í 18. sæti í undankeppni mótsins í gær og tryggði sig þar með áfram í undanúrslitin. Í morgun var keppt í undanúrslitum og þar endaði Agnes í 24. sæti af 24 keppendum. Agnes klifrar í undanúrslitum. Klifursamband Íslands Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Hélt að sprengja hefði sprungið þegar jarðskjálftinn reið yfir Jarðskjálfti, 3,6 að stærð, varð rétt norðaustur af Osló í Noregi í morgun. Íbúar í suðausturhluta Noregs fundu vel fyr