Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 10. maí 2026 kl. 6:17ERLENDAR FRÉTTIR Síle Jarðskjálfti af stærðinni 5,8 Brynja Dögg Friðriksdóttir Biobio svæðið í Mið-Síle. Google map Jarðskjálfti af stærðinni 5,8 varð í Biobio í Mið-Chile í gærkvöld að staðartíma, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Skjálftinn átti upptök á 23 kílómetra dýpi, samkvæmt Evrópsku jarðskjálftamiðstöðinni (EMSC). Ekki hafa borist fréttir af manntjóni eða eyðileggingu á innviðum. Jarðskjálftar eru tíðir á Biobio-svæðinu. Árið 1960 fórust þar 2.000 manns í stærsta skráða jarðskjálfta sögunnar, sem mældist 9,5 að stærð. Fyrir 8 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Bandarískir farþegar Hontius ekki endilega í sóttkví Yfirmaður sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna segir að Bandaríkjamenn sem voru um borð í hollenska farþegaskipinu Hondius verði ekki endilega settir í sóttkví. „Þetta er ekki covid,“ sagði hann í viðtali við CNN í dag. Fyrir 16 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Nýliðar ÍBV enn með fullt hús stiga Hans Steinar Bjarnason Nýliðar ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta eru óstöðvandi í upphafi Íslandsmótsins. ÍBV vann 2-0 sigur á Þór/KA í Eyjum í dag og hefur unnið alla fjóra leikina sína í deildinni. Allison Grace Lowrey kom ÍBV yfir á 30. mínútu í 1-0 og Olga Sevcova skoraði seinna markið á 69. mínútu. Kristín Klara Óskarsdóttir leikmaður ÍBV. RÚV / Mummi Lú Í hinum leik dagsins vann FH 2-1 útisigur á Stjörnunni. Deja Sandoval og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk FH en Hulda Hrund Arnarsdóttir minnkaði muninn fyrir Stjörnuna í uppbótartíma. Þetta voru fyrstu leikir fjórðu umferðar sem lýkur á morgun með þremur leikjum. Breðablik - Valur Fram - Víkingur Þróttur - Grindavík/Njarðvík Staðan í deildinni Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti ÍBV fær sekt fyrir „vítaverða“ hegðun áhorfanda Handknattleiksdeild ÍBV þarf að greiða 150 þúsund króna sekt vegna fordómafullrar hegðunar áhorfanda á leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna sl. þriðjudag. Áhorfandinn söng úr stúkunni með niðrandi hætti um markvörð Vals. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Biðtími eftir innlögn á Vogi styttist um þriðjung Breytt þjónustuskipulag og áhersla á göngu- og dagdeildir og snemmtæka íhlutun hafa leitt til styttri biðtíma eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi, segir forstjóri SÁÁ. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Fjöldi nýrra starfa í farvatninu fyrir norðan Fjöldi nýrra starfa er í farvatninu á Norðurlandi vegna uppbyggingar gagnavera. Sveitarstjórar taka vel í áformin. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Fyrstu farþegarnir af Hondius fljúga til síns heima Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hveragerðisbær Tæplega fjórar milljónir króna kostar að hreinsa pípuorgel Hveragerðiskirkju Pípuorgelið í Hveragerðiskirkju safnar ryki og kostar það tæplega fjórar milljónir króna að hreinsa það. Nokkrir tónleikar hafa verið haldnir síðustu vikur í kirkjunni þar sem allur ágóði hefur runnið til hreinsunar á orgelinu. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Ótíð í víti: „Maður er algjörlega sleginn“ Gagnrýnendur Kiljunnar segja Ótíð í víti: Lífsreynslusögu eftir Gyrði Elíasson vera merkilega og áhrifamikla bók sem gengur nærri höfundinum. Hann lýsi af miskunnarleysi þunglyndi sínu og sjálfsvígstilraunum og reyni að koma líðan sinni í orð. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Hart barist í Líbanon þrátt fyrir vopnahlé – 39 drepnir í loftárásum í gær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Að minnsta kosti 39 voru drepnir í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. Árásir hafa gengið á víxl milli hersins og Hezbollah-samtakanna, þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið milli Ísraels og Líbanon síðan 16. apríl. Ísraelsher hefur beint árásum sínum á innviði og fólk tengt Hezbollah-samtökunum. Þau segjast hafa gert drónaárásir á ísraelska hermenn í suðurhluta landsins sem viðbragð við loftárásunum. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Líbanons hafa rúmlega 120 verið drepnir í loftárásum Ísraelshers í síðustu viku og í morgun hafi minnst tveir látist í loftárásum Ísraelshers og fimm særst. Íbúar leita að fólki á lífi í húsarústum í þorpinu Saksakieh í suðurhluta Líbanon, í kjölfarið á loftárás Ísraelshers 9. maí 2026. AP / Mohammed Zaatari Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóahreppur Íbúar Flóahrepps svara könnun um sameiningu samhliða sveitarstjórnarkosningum Íbúar Flóahrepps greina frá afstöðu sinni til sameiningar við önnur sveitarfélög á samhliða því að þeir skila inn atkvæði sínu í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Núverandi oddviti sagði í haust að sveitarfélagið stæði sterkt á eigin fótum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Aflýstu flugferðum því engir flugmenn hlupu í skarðið Aflýsa þurfti tveimur flugferðum frá Íslandi síðustu daga vegna manneklu. Reynt er að tryggja að aldrei þurfi að grípa til þess en ekki er hægt að koma alfarið í veg fyrir það, segir Icelandair. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Neyðarlokun á bráðamóttöku í Kristianstad – Þrír grunaðir um manndráp Maður lést af alvarlegum stunguáverkum eftir átök í miðborg Kristianstad í gærkvöld. Þrír hafa verið handteknir. Uppnám varð á bráðamóttöku eftir komu mannsins sem ráðist var á. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Hlynur á næstbesta tíma Íslendings í maraþoni: „Eins og að fá hníf í magann“ Hlynur Andrésson var nálægt því að slá Íslandsmet sitt í maraþonhlaupi þegar hann kom í mark á 2:15:30 í Kaupmannahafnarmaraþoninu í dag. Hann var tæpum tveimur mínútum frá meti sínu frá 2021. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál „Myndi aldrei senda barnið mitt í heimavist“ Reynsla fólks af því að fara barnungt í heimavistarskóla er afar misjöfn. Fyrir marga var það þroskandi og skemmtileg reynsla meðan aðrir glíma enn við afleiðingar þess að hafa þurft að fara alltof snemma að heiman. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fyrsti hópur fólks farinn frá borði Hollenska skemmtiferðaskipið Hondius er komið til Tenerife. Hantaveira greindist í fólki um borð í skemmtiferðaskipinu fyrr í vikunni og því fær skipið ekki að leggjast að bryggju. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Stóraukin skipaumferð á Kaspíahafi Skipaumferð á stærsta stöðuvatni heims hefur stóraukist á síðustu mánuðum vegna viðskiptaþvingana og stríðsátaka í Úkraínu og Mið-Austurlöndum. Skip slökkva ítrekað á gervihnattastaðsetningarbúnaði svo erfitt er að rekja ferðir þeirra. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Maduro farinn en lítið breytt Daglegt líf almennings í Venesúela hefur lítið breyst eftir að Bandaríkjaher handtók Maduro í byrjun árs. Fólk á enn vart til hnífs og skeiðar og ekki hefur enn verið tilkynnt hvenær kosningar verða haldnar. Fjallað er um málið í Heimskviðum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rigning víða en þurrt fyrir austan Veðurspá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir þurru veðri á austanverðu landinu en votviðri annars staðar. 10. maí 2026 kl. 5:43INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þrjú ungmenni á skemmtistað í fylgd fullorðins Fullorðinn einstaklingur var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í gærkvöld eða nótt en með honum voru þrír undir aldri, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 10. maí 2026 kl. 3:57ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Þýskaland og Kanada ætla að auka samstarf milli þjóðanna Brynja Dögg Friðriksdóttir Varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra Lars Klingbeil. EPA / CLEMENS BILAN Stjórnvöld í Kanada og Þýskalandi ætla að auka samstarf milli þjóðanna. Þetta tilkynnti Lars Klingbeil, varakanslari Þýskalands og fjármálaráðherra, eftir fund með Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Toronto í Kanada í gær. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá. Klingbeil segir að samstarfið verði á sviði gervigreindar, orkumála, mikilvægra hráefna og verkefna á sviði varnarmála. Varakanslarinn hefur einnig lagt til að Kanadamenn kaupi kafbáta af Þjóðverjum. 10. maí 2026 kl. 2:30ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Segir litlar líkur á að íbúar Tenerife smitist af hantaveiru Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar kom til Tenerife í gær. Hann segir að spænsk yfirvöld hafi vandað til verka fyrir komu Holdiusar til Tenerife og íbúar eyjarinnar þurfi ekki að óttast það að smitast af hantaveirunni. 10. maí 2026 kl. 1:45ERLENDAR FRÉTTIR Malí 80 drepnir í árás jíhadista Brynja Dögg Friðriksdóttir Séð yfir Bamako, höfuðborg Malí. AP / Uncredited Að minnsta kosti 80 voru drepnir í árás jíhadista í Mið-Malí í gær. Jíhadistahópurinn JNIM tengist hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og hefur með árásum sínum, sprengutilræðum og öðrum ódæðum gert líf íbúa nær óbærilegt víða um landið undanfarið. Þá voru minnst 30 drepnir í annarri árás á þorp í Mið-Malí á miðvikudaginn. Malí hefur glímt við versnandi öryggisástand í meira en áratug. Fjölmörgum svæðum í norðurhluta landsins er stjórnað af vígahópum, uppreisnarmönnum og glæpasamtökum sem hafa lengi barist um yfirráð á stórum svæðum landsins. 10. maí 2026 kl. 0:25ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Brot á vopnahléi Rússa og Úkraínumanna Rússar og Úkraínumenn saka hvor annan um brot á þriggja daga vopnahléi sem enn er í gildi. Rússlandsforseti sagði í gær á hátíðarhöldunum í Moskvu að átökin væru að líða undir lok en gagnrýndi harðlega stuðning Vesturlanda við Úkraínu. 9. maí 2026 kl. 23:50ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Funduðu um varnarmál og stöðuna í Mið-Austurlöndum Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsætisráðherra og utanríkisráðherra Katar funduðu um varnarmál og samstarf landanna í dag. Katarar hafa reynt að miðla málum í stríðinu milli Írana og Bandaríkjamanna undanfarið. 9. maí 2026 kl. 23:22INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Listaháskóli Íslands leggur leið sína í Stakkahlíð Viljayfirlýsing um tilfærslu allra starfsstöðva Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð 1 var undirrituð í dag. Rektor skólans segir ný