- What: Iceland is opening a specialized violence and trauma center for children within Landspítali.
- Impact: The center aims to improve healthcare system's response to violence against children and will start screening in primary schools.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 13:19 Skimun fyrir ofbeldi gegnir lykilhlutverki Alma D. Möller heilbrigðisráðherra kynnir fyrirhugaða opnun Bryndísarhlíðar ásmat Runólfi Pálssyni, forstjóra Landspítala og Guðrúnu Ingu Sívertssen, formanni stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Aðkoma heilbrigðiskerfisins hefði mátt vera meiri og þessari miðstöð er ætlað að bæta þar úr.“ Þetta segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra um fyrirhugaða opnun Bryndísarhlíðar, sérhæfðrar ofbeldis- og áfallamóttöku fyrir börn innan Landspítala, í nafni Bryndísar Klöru heitinnar. Frétt af mbl.is Þekkingar- og þjónustusetur í nafni Bryndísar Klöru Aðkoma heilbrigðiskerfisins hefði mátt vera meiri Bryndísarhlíð mun með tímanum þróast út í þekkingar- og þjónustusetur hvað varðar meðferð ofbeldis innan heilbrigðiskerfisins þegar Landspítali mun færa aðra áfallameðferðarstarfsemi undir sama þak. „Við erum að hefja skimun í grunnskólum, fyrst með forprófunum og þá fáum við upplýsingar um umfang verkefnisins. Hversu mörg börn hafa orðið fyrir ofbeldi eða orðið vitni að ofbeldi svo þau þurfi aðstoð við úrvinnslu,“ segir Alma. Þá segir hún að vísbendingar fáist um hvaða meðferð börnin þurfi, áfallahjálp eða geðheilbrigðismeðferð og þá í hvaða umfangi. „Þetta er þjónusta sem hefur ekki verið í boði með nægilegum hætti. Við erum með Barnahús sem sér um alvarlegustu tilvikin en aðkoma heilbrigðiskerfisins hefði mátt vera meiri.“ Frétt af mbl.is Bryndís Klara mun bjarga mannslífum Opna innan 10 mánaða og vígja á afmælisdegi Bryndísar Klöru Alma vonar að hægt verði að opna Bryndísarhlíð innan 10 mánaða. „Bryndís Klara á afmæli 2. febrúar, kannski vígjum við þá þó að einhver þjónusta verði komin inn fyrir þann tíma.“ Verkefnið hefur verið fjármagnað fyrir þetta ár og næsta og segir ráðherra að áframhaldandi fjármögnun verði að koma inn í fjármálaáætlun. Frétt af mbl.is Bryndísarhlíð fyrir börn sem hafa sætt ofbeldi Að vakna betur til vitundar Hvers vegna hefur úrræði sem þetta ekki alltaf verið til staðar? „Á því eru örugglega margar skýringar. Það varð auðvitað mikil vitundarvakning, leyfist mér að segja, árið 2024. Fyrst þegar ríkislögreglustjóri birti skýrslu um ofbeldi meðal barna, í júní ef ég man rétt, og þá var gerð aðgerðaáætlun með mörgum atriðum. Síðan var þetta hörmulega atvik á Menningarnótt sama ár og þá var bætt enn frekar í áætlunina. Við höfum kannski svolítið verið að vakna upp við vondan draum og Bakkakotsmálið endurspeglar auðvitað að það var kannski andvaraleysi varðandi ofbeldi gegn börnum áður.“ Segir ráðherra að samfélagið sé kannski að vakna betur til vitundar um hvers lags meinsemd ofbeldi er og hversu gríðarleg áhrif það hefur á þau börn sem fyrir því verða. Alexandra Helga lokar fyrirtækinu sínu Myndskeið: Eyjamenn mjög áberandi Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Stebbi Jak ákærður en neitar sök Sjálfstæðismenn í Eyjum halda prófkjör ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Níu drepnir í skotárás í Kanada Ná nákvæmari vöktun á landinu Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Alexandra Helga lokar fyrirtækinu sínu Myndskeið: Eyjamenn mjög áberandi Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi Stebbi Jak ákærður en neitar sök Sjálfstæðismenn í Eyjum halda prófkjör ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Epstein-vináttan sem skekur bresk stjórnmál Mun fleiri taka hlutdeildarlán Ólína tekur við sem settur rektor Nýtt framboð í Grímsnesinu Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson