Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga styður vaxta­tekjur en vænt útlána­tap til lengri tíma

Read Full Article →

Greiningar­fyrir­tækið Akkur gerir ráð fyrir að hagnaður Arion banka nemi 31,6 milljörðum króna á árinu 2026, saman­borið við 32,5 milljarða króna árið 2025. Í spánni kemur fram að rekstrar­tekjur bankans muni nema 77,4 milljörðum króna á árinu 2026, saman­borið við 78,4 milljarða árið áður. Rekstrar­gjöld eru á sama tíma áætluð 30 milljarðar króna, upp úr 28,2 milljörðum árið 2025. Þrátt fyrir lítil­lega lægri tekjur er gert ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta nemi 42 milljörðum króna á árinu 2026, saman­borið við 45 milljarða árið áður. Hreinar vaxta­tekjur eru áætlaðar 55,7 milljarðar króna, upp úr 52,5 milljörðum árið 2025, en hreinar þóknana­tekjur eru taldar dragast saman lítil­lega. Í skýringum Akkurs segir að þrálát verðbólga og hátt vaxta­stig hafi stutt við hreinar vaxta­tekjur, sem skili sér í hæstu hreinu vaxta­tekjum í sögu bankans. Þá er gert ráð fyrir að sam­sett hlut­fall hjá Verði á fjórðungnum verði svipað og á sama tíma í fyrra. Akkur gerir ekki ráð fyrir meiri­háttar breytingum á bók­færðu virði Arnar­landsins né Blikastaða á fjórðungnum. Þá telur félagið lík­legt að virðis­rýrnun aukist í takt við vænt útlána­tap til lengri tíma, meðal annars vegna hækkandi at­vinnu­leysis og hægari um­svifa á fast­eigna­markaði. Sjá einnig Flýta greiðslum frá Arion vegna Blikastaða­lands

Share this article