Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH svaraði kröftuglega og úrslitaeinvígið er jafnt

Read Full Article →

FH lagði Val að velli í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta. Valur hafði unnið fyrsta leikinn sannfærandi á heimavelli sínum á föstudag en í kvöld var FH sterkara liðið. FH var yfir frá upphafi leiks og var staðan í leikhléi 18-15. Mest náði FH svo sjö marka forystu í seinni hálfleik og þeir unnu svo með 6 marka mun 31-25. Staðan í úrslitaeinvíginu er því jöfn 1-1. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum og mætast liðin næst að Hlíðarenda á fimmtudagskvöld. Tölfræði leiksins má finna hér. Ómar Darri Sigurgeirsson var drjúgur hjá FH í kvöld með 6 mörk.Rúv / Mummi Lú

Share this article