Valsmenn urðu deildarmeistarar í vetur eftir harða keppni við FH. Að lokum munaði aðeins einu stigi á liðunum á toppnum. Valsliðið hefur virst í góðum gír í úrslitakeppninni líka og unnið alla fimm leiki sína á leið í úrslitaviðureignina. „Við erum bara mjög spenntir. Þetta verður bara hörkueinvígi,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals. FH varð Íslandsmeistari 2024 og tapaði svo í úrslitum gegn Fram á síðasta ári. Þeir komu fram hefndum í ár og slógu Fram úr í 8-liða úrslitum og svo granna sína í Haukum í undanúrslitum. Titilhungrið er enn til staðar. „Þetta er gaman að spila svona úrslitaeinvígi. Það er mikill spenningur í Hafnarfirði,“ segir Ágúst Birgisson, línumaður FH. Fyrsti leikur Vals og FH er að Hlíðarenda í kvöld klukkan hálfátta.