Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sigursælustu lið landsins útkljá titilinn í kvöld

This article does not describe a security vulnerability or threat; it is a sports news article about a handball championship final between two Icelandic teams. Therefore, no technical security summary can be provided.
Read Full Article →

Flautað verður til leiks í úrslitaleiknum klukkan 19:30 í kvöld. Leikið er í N1-höllinni að Hlíðarenda og seldist upp á leikinn á örfáum klukkutímum á þriðjudagsmorgun. Sjónvarp Símans sýnir beint frá leiknum í opinni dagskrá. Leikir liðanna í einvíginu hafa verið jafnir og spennandi. Valur vann þann fyrsta 37-34 en FH svaraði á heimavelli sínum með 31-25 sigri. Fóru nú leikar að æsast og Valur vann þriðja leikinn 32-30 en eftir tvíframlengdan spennutrylli jafnaði FH metin með 37-36 sigri í fjórða leiknum. Bestu lið landsins og sögunnar Valur og FH urðu í tveimur efstu sætum deildarkeppninnar í Olísdeildinni í vetur. Valur endaði stigi á undan eftir spennandi endasprett og varð deildarmeistari. Leikir liðanna voru öfugsnúnir því FH vann á Hlíðarenda í september með fimm marka mun, 32-27, og Valur svaraði með sigri í Kaplakrika í desember, 34-29. Saga baráttu þessara tveggja liða er þó miklu lengri en bara í vetur. Valur og FH eru sigursælustu lið landsins í karlaflokki; Valur hefur 24 sinnum orðið Íslandsmeistari og FH 17 sinnum. Saman eru þessi tvö lið með tæplega helming allra Íslandsmeistaratitla í karlaflokki frá því fyrsti titillinn var veittur árið 1940 (Valur vann þann titil). Síðast þegar liðin mættust í úrslitum var vorið 2017 og þá réðust úrslitin líka í oddaleik. 21. maí 2017 vann Valur í Kaplakrika með 27 mörkum gegn 20 og hampaði titlinum. Hér má sjá brot af leik liðanna 2017 og fögnuð Vals.

Share this article