Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Að­gangs­verð að móttöku með Trump hríð­fellur

Read Full Article →

Áhugi fjár­festa á raf­myntinni $TRUMP, sem kennd er við Donald Trump Bandaríkja­for­seta, virðist hafa dvínað veru­lega ef marka má nýja um­fjöllun Financial Times. Sam­kvæmt út­tekt blaðsins hefur kostnaðurinn við að tryggja sér að­gang að sér­stakri VIP-móttöku með for­setanum lækkað veru­lega frá sam­bæri­legum viðburði í fyrra. Alls fá 297 stærstu hand­hafar $TRUMP myntarinnar að­gang að ráð­stefnu sem fram fer um helgina. Donald Trump verður þar meðal ræðu­manna, ásamt Mike Ty­son, fyrr­verandi heims­meistara í hnefa­leikum, og Paolo Ardoino, for­stjóra Tet­her. Þeir 29 sem efstir urðu í keppninni fá þar að auki að­gang að sér­stakri móttöku með for­setanum sjálfum og öðrum gestum. Greining FT sýnir að mið­gildi eignar þeirra sem tryggðu sér VIP-að­gang nam um 539 þúsund dölum í $TRUMP við lok keppninnar, jafn­virði um 191 þúsund mynta. Á síðasta ári þurfti hins vegar að eiga mynt að verðmæti um 3,28 milljónir dala til að komast í sam­bæri­legan hóp. Þessi mikla lækkun bendir til þess að markaðurinn leggi nú mun minna upp úr tengingunni við Trump en áður. Þróunin fellur jafn­framt að víðtækari lækkunum á markaði fyrir svo­kallaðar memecoin-raf­myntir, sem byggja fyrst og fremst á vinsældum, ímynd og spá­kaup­mennsku fremur en undir­liggjandi virði. $TRUMP hefur fallið um 93 pró­sent frá hæsta gildi sínu, sam­kvæmt gögnum Coin­Mar­ket­Cap, og hefur þar með fylgt al­mennri niður­sveiflu í þessum hluta raf­mynta­markaðarins. Keppnin virðist ekki heldur hafa stutt við verð myntarinnar nema mjög tíma­bundið. Þegar viðburðurinn var kynntur í mars hækkaði verð $TRUMP úr 2,90 dölum í 4,05 dali, en við lok keppninnar 14. apríl var það komið niður í 2,88 dali. Þá virðast margir þeirra sem tryggðu sér að­gang hafa minnkað stöðu sína strax að keppni lokinni. Sam­kvæmt FT lækkaði saman­lagt eignar­hald vinnings­hafanna úr 17 milljónum mynta þegar mest lét í 9,7 milljónir aðeins viku síðar. Meðal þeirra sem voru efstir á lista var kín­verski raf­mynta­fjár­festirinn Justin Sun, sem átti sam­kvæmt út­tekt FT um 9,4 milljónir dala í $TRUMP allan keppnistímann. Sun hefur áður vakið at­hygli fyrir um­deild við­skipti og deilur við bandarísk yfir­völd og komið víða við í um­ræðunni um raf­myntir. Þetta er í annað sinn sem efnt er til slíkrar sam­komu frá því $TRUMP var sett á markað í janúar 2025, skömmu fyrir em­bættistöku Trumps. Ólíkt fyrri keppni virðast þátt­tak­endur nú þó ekki hafa hagnast á þátt­tökunni, þar sem verð myntarinnar var við lok keppninnar komið undir það stig sem gilti þegar hún hófst. Viðburðurinn hefur einnig vakið pólitískar spurningar í Was­hington. Öldunga­deildarþing­menn úr röðum demókrata hafa óskað eftir frekari upp­lýsingum um þátt for­setans og fjöl­skyldu hans í sam­komunni, meðal annars til að meta að hvaða marki þau kunni að hagnast á henni. Þrátt fyrir mikla kynningu er tekið fram í skilmálum keppninnar að Trump kunni að hætta við þátt­töku með litlum fyrir­vara og að viðburðinum geti verið aflýst. Skipu­leggj­endur hafa engu að síður lofað að sam­koman á Mar-a-Lago verði „sögu­leg“.

Share this article